Helgin mín í myndum

Helgin var sérstaklega fljót að líða að þessu sinni, ég og amma komum hingað til Noregs á föstudaginn og förum heim í dag. Þetta hefur verið dásamlegt frí með fjölskyldunni og mikið sem ég hlakka til að fá þau öll heim um jólin, það styttist nú í það. 
Svona frí eru alltaf svo fljót að líða og ég væri nú alveg til í að vera nokkra daga til viðbótar, en en.  Ég tók mikið af myndum eins og ég geri nú alltaf, ég ætla að deila nokkrum með ykkur… eða já nokkrum. Hér kemur myndaflóð. 
Steindór Mar elsti prinsinn minn fór með mér í göngutúr í fallega haustveðrinu

Kristían Mar Kjaran sælkeri var ánægður með kaffihúsaferð
Kristían, amma Rósa og Daníel Mar í stuði
Eva Laufey Kjaran og Kristían Mar Kjaran

Amma mín Stína og Maren Rós systir mín 
Helgarbrönsinn og eftirrétturinn eitt kvöldið, kaffi-súkkulaðimús með jarðarberjum. Uppskriftin kemur fljótlega inn á bloggið. 
Það er svo afskaplega huggulegt hér í kotinu og ég naut þess að skoða haust matreiðslublöðin
Litlu gaurarnir mínir yfir sig ánægðir að fá ömmu Stínu í heimsókn 
Alltaf tilefni til þess að skála 

Mæðgurnar fínu 

Heitt súkkulaði með risastórum sykurpúða eftir göngutúr í Stavanger, þegar ég segi göngutúr þá meina ég búðarráp
Mamma mín yndislega 

Ég er voðalega ánægð með ferðina. Heppin ég að eiga svo góða fjölskyldu. 
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *