Gróft heilhveitibrauð

Það er bæði einstaklega ánægjulegt og róandi að baka sitt eigið brauð. Það veitir öryggistilfinningu að vita nákvæmlega hvað fer í brauðið og svo er notalegt að fylgjast með bakstursferlinu. Í morgun bakaði ég gróft heilhveitibrauð með ýmsum korntegundum. Heilhveiti er malað með kími og klíði og er mun næringarríkara en hvítt hveiti. Heilhveiti hentar ágætlega til brauðgerðar en deig úr því er þó aðeins þyngra í sér en brauð úr hvítu hveiti. Ég notaði eingöngu heilhveiti í þetta brauð en það er líka ágætt að blanda hvítu hveiti saman við heilhveitið þegar bakað er úr því. Ég sigta alltaf hveiti áður en ég nota það í bakstur og það er engin undantekning með heilhveiti, Það gerir gæfumuninn.
Hér kemur uppskriftin að grófu og góðu brauði sem ég mæli auðvitað með að þið prófið.
Gróft heilhveitibrauð
  • 8 dl Kornax heilhveiti
  • 1 dl haframjöl
  • 2 dl sólblómafræ
  • 1 1/2 dl hörfræ
  • 1 dl gróft kókosmjöl (ágætt að saxa það svolítið)
  • 1 dl rúsínur (má sleppa)
  • 1 tsk gróft sjávarsalt
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 msk lífrænt hunang
  • 7 dl ab mjólk
  • 3 dl ylvolgt vatn
Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 200°C. (Blástur)
  2. Blandið öllum þurrefnum saman í skál. Þið getið notað hvaða fræ og korntegundir sem þið viljið, það er um að gera að nýta það sem þið eigið til í skápunum.
  3. Blandið ab mjólkinni, vatninu og hunanginu saman við þurrefnin. Mér finnst gott að bíða með að setja 1 dl af vatni saman við og hella því smám saman við deigið, það er nefnilega betra að bæta í rólega. Um leið og deigið er samlagað þá er það tilbúið. Ég nota bara hendurnar til þess að blanda þessu öllu saman.
  4. Látið deigið í pappírsklætt formkökuform og bakið í 55 – 60 mínútur.
Það er ágætt að leyfa brauðinu að kólna í svolitla stund áður en þið berið það fram. Ilmurinn sem fer um heimilið þegar brauðið er tilbúið er dásamlegur og það er fátt betra en nýbakað brauð með smjöri, osti og góðri sultu. Þetta brauð er mjög gróft og er því mun þéttara í sér en önnur. Brauðið geymist í örfáa daga en er best nýbakað, það er hins vegar frábært að frysta brauðið í sneiðum. Ég er búin að skera mitt brauð niður í sneiðar og setja í frystinn og nú get ég sótt mér eina og eina brauðsneið út vikuna.

 

 

 

Ég vona að þið hafið átt einstaklega góða helgi kæru lesendur.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

Leave a Reply to Anonymous - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *