Fyllt ljúffengt brauð með fetaost og tómötum.

260 gr. Speltmjöl ( 130 gr. gróft og 130 gr. fínmalað)
25 gr. Ger
2.5 dl. Heitt vatn
2 msk. Ólífu olía
2 tsk. Santa María kryddblanda
1 msk. Graslaukur
50 gr. Fetaostur

Fylling: 
1oo gr. Fetaostur
150 gr. Philadelphia rjómaostur með hvítlauks-og kryddbragði.
3 tómatar, skornir smátt niður
Santa María kryddblanda

Aðferð:
  • Hitið ofninn á 200°C
  • Blandið þurrefnunum vel saman, hellið vökvanum út í og hrærið vel í nokkrar mínútur. 
  • Látið deigið hefast á hlýjum stað í 30 – 40 mínútur. (Gott er að setja heitt vatn í vaskinn og láta skálina standa ofan í) 
  • Hnoðið vel deigið og fletjið út. (Gott er að setja smá hveiti undir deigið svo það festist ekki við borðið) 
  • Deigið er smurt með philadelphia rjómaostinum og tómötum er síðan bætt við sem og kryddblöndunni. Ca. 1 msk. 
  • Lokið brauðinu og penslið með smá smjöri. 
  • Inn í ofn í ca. 30 mínútur. 

 Stráið smá hveiti yfir deigið 

Ferlega gott brauð sem á alltaf vel við. 

Vonandi eigið þið góðan sunnudag og njótið þess að slappa af svona rétt áður en að ný vika hefst. 

xxx
xxx

Endilega deildu með vinum :)

6 comments

Leave a Reply to Maríanna - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *