Eurovision gleði

Helgin er búin að vera ansi ljúf, í raun er enn helgi og því ætla ég að liggja út í garði í dag og njóta sólarinnar. Á laugardaginn var smá eurovision gleði hér heima við, það var ótrúlega skemmtilegt. Ég hef örugglega sagt það áður og segi það enn og aftur, ég á svo skemmtilega vini! 
En nú ætla ég að slökkva á tölvunni og koma mér út í blíðuna. 
Ég vona að þið eigið eftir að eiga góðan dag.

xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

2 comments

  • Hæ. Dýrka bloggið þitt!
    Ég er með eina spurningu – er að velta fyrir mér með hvítsúkkulaðikremið. Ég hef bæði gert það á súkkulaðiköku og einnig á muffins, en mér finnst það verða svo rosalega hart ef það fer í kæli og ekki jafn gott ef það er við stofuhita?
    Ertu með einhver ráð fyrir mig út af því? Er það út af súkkulaðinu sem það harnar svona í kæli?

    Takk fyrir! Spennt að fylgjast með blogginu þínu – æðislegar uppskriftirnar þínar 🙂

    Kv. Ragnhildur

    • Takk fyrir það Ragnhildur 🙂 Já, það verður ansi hart þegar að það fer inn í kæli, ég reyni að gera kremið um leið og ég ætla að nota það, reyni að sleppa við að setja það í kæli. En annars er gott að taka kökuna/kökurnar úr kæli hálftíma til klukkutíma áður en þú ætlar að bera þær fram. Það er út af smjörinu, að ég held sem það harnar svona í kæli. Smjörið verður svo svakalega stíft og leiðinlegt.

      Kær kveðja,

      Eva Laufey

Leave a Reply to Eva Laufey Kjaran - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *