Archives

Dásamlegur tími

 Gleðileg jól  Þessi bið er ansi erfið  Þetta er besta súpan sem ég veit um. Jólasúpa mömmu.   Ég er með sérþarfir á jólum, mamma eldar handa mér purusteik á meðan að hinir borða hamborgarahrygg.   Kaffi og konfekt.  Ótrúlega sæl og þakklát með kvöldið. Naut þess að vera með fjölskyldunni og tengdafjölskyldunni á þessu fallega kvöldi.  Ég vona að þið eigið yndislegar stundir um jólin. xxx Eva Laufey Kjaran

Skötupartí

Skötuveisla hjá ömmu og afa í kvöld. Nú eru jólin að koma! Ég fæ mér alltaf skötu, ég viðurkenni að ég fæ mér hana bara til þess að vera með. Hún er þó ágæt blessunin, kannski ekkert sú besta en alls ekki sú versta. Lyktin er líka svo dásamleg að ég vil helst ekki fara í sturtu. Ég á eftir tvær gjafir. Ég byrjaði þó á gjafakaupum í sumar, ætlaði nú aldeilis að vera sniðug og vera búin með þetta fyrir jólin. En eins og gerist nú stundum þá bíður maður með eitthvað fram að síðustu stundu, en ég þykist vita að fleiri eru í sömu sporum og ég. Það eru allavega nógu margir niðri í bæ að klára kaupin :o) Ég ætla að klára…

Hráskinka með klettasalati og melónum,

 Það er einn forréttur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér, einfaldur en ferlega bragðmikill og góður. Hráskinka með klettasalati, melónu, steiktu brauði og maldon salti. (Punkturinn yfir i-ið væri svo rifinn parmesan ofan á) Þetta er ótrúlega einfalt og fljótlegt. Ég lét hráskinkuna fyrst á diskinn, skar melónur í litla bita og dreifði yfir, hreinsaði klettasalatið vel og lét það ofan á, lét svo aðeins fleiri melónur og svo steikta brauðið (Tók venjulegt heilhveitibrauð, skar hliðarnar af og barði brauðið niður þar til það var orðið alveg flatt, lét olíviu olíu á pönnu og kryddaði með salt og pipar, lét það vera á pönnunni þar til þetta var orðið vel ristað og fín.) Hefði ég ekki gleymt að kaupa parmesan þá fengi hann að…

London huggulegheit

 Þessi fær sér alltaf eftirrétti  Haddi og vinur hans Jack.  Aðeins kíkt út á lífið  Ferskleiki í morgunsárið, í útlöndum má maður alveg fá bláberjamúffu í morgunsárið Dásemd, ég fékk mér nánast eina svona á dag þegar að ég bjó í Bretlandi. Kannski ekki besta hugmynd varðandi línurnar en sú besta varðandi bragðið.  xxx Eva Laufey Kjaran

Brownie með súkkulaðikremi og jarðaberjum.

 Ég er súkkulaðifíkill eins og svo margir aðrir. Mér finnst fátt betra en eftir góða máltíð að fá smá súkkulaði. Það allra besta er verulega djúsí súkkulaðibrownie með súkkulaðikremi og jarðaberjum. Hér kemur uppskriftin: 230 gr. Smjör  500 gr. Sykur 4 Egg  150 gr.  kakó  1 tsk. Salt  1 tsk. Lyftiduft 1 tsk. Kaffi  1 tsk. Vanilla Extract (eða vanilludropar)  170 gr. Hveiti 230 gr. Súkkulaðidropar Aðferð: Byrjum á því að hita smjörið við vægan hita um leið og smjörið er búið að bráðna þá tökum við pottinn af hellunni og bætum sykrinum saman við og hrærum ansi vel í. Svo setjum við pottinn aftur á helluna og leyfum þessu að vera í um 20 – 30 sekúndur við vægan hita.  Því næst pískum við eggin…

Ponti’s

Ponti’s. Yndislegur Ítalskur staður í London, í hliðargötu á Oxford Street. Ferlega huggulegur og skemmtilegur staður sem við famelían höfum mikið dálæti á. Höfum farið nokkrum sinnum saman til Lundúna og förum þá alltaf á Ponti’s, allavega einu sinni á meðan að við dveljum hér.  Guðdómlegar Ólífur  Geitarostavefja. Jummí!  Mini- Tiramisú. Uppáhald og yndi. xxx Eva Laufey Kjaran

London

Er farin til Lundúna, þar ætla ég að eyða helginni ásamt famelíunni minni. Mikil mikil ósköp hlakka ég til.  Hlakka til að vakna í fyrramálið, beint á uppáhalds kaffihúsið og njóta þess að vera til.   Bretland er mitt uppáhald og yndi.  xxx Eva Laufey Kjaran

1 55 56 57 58 59 80