Archives

Fallegur haustdagur í Noregi

Ég hef það svakalega gott hérna úti hjá systur minni. Vil helst ekkert fara heim strax, væri nú alveg til í að eyða fleiri dögum með þessum æðibitum. Í dag þá fórum við út að labba um bæinn, fórum á kaffihús og tókum ansi margar skemmtilegar haustmyndir.  Vinir að vera ofurkrútt Fórum auðvitað á kaffihús.   Daníel Mar að gæða sér á súkkulaðibitaköku Haustið   Þegar að litlir fætur voru smá þreyttir þá fór Eva frænka að stríða lillunum  Kristían Mar Kjaran og Daníel Mar, svo ótrúlega fallegir drengir.  Týndum laufblöð og höfðum gaman. Virkilega huggulegur dagur að baki.  xxx Eva Laufey Kjaran

Noregsferð

Í morgun þá var loksins komið að deginum sem ég var búin að bíða ansi lengi eftir. Um fimmleytið í morgun þá lögðum við Aldís af stað til Keflavíkur og þaðan til Noregs til systur minnar. Hún vissi ekki af því að ég væri að koma svo það var ansi skemmtilegt að koma henni á óvart. Það var heimsins best að hitta hana og hennar prinsa, jesús hvað ég hef saknað þeirra. Næstu dagar verða sumsé æði. Beðið eftir vélinni til Stavanger.  Aldís Birna stóð sig ansi vel og plataði systur mína upp úr skónum.  Fátt betra en að hitta elsku Mareni mína.  Nú er það sushi og spjall. Ég vona að þið eigið gott kvöld elsku vinir.  xxx Eva Laufey Kjaran

Lífið á Instagram og uppskriftir í Morgunblaðinu

 1. Heitt súkkulaði með piparmyntu á Te&Kaffi. Dásemd í bolla. 2. Blingað sig upp   3. Bleikur Cappuccino                  4. Vinkonur á góðri stundu.   5. Hélt matarboð fyrir yndislegar vinkonur   6. Austurlensk matargleði með góðri vinkonu   7. Fallegar og ljúfar kökur                  8. Dóra landkönnuður  Þessi vika hefur liðið svo ótrúlega hratt og það hefur verið mikið að gera í vikunni, það eru enn nokkur atriði sem ég ætlaði mér að klára svo ég eyði föstudagskvöldinu í lærdómsfjöri og uppskrifta dúlleríi. Ég ætla engu að síður að eiga deit með manni mínum, ég hef ekki borðað kvöldmat í vikunni að neinu viti heldur gripið eitthvað mér. Skyndibitafæði er í svo litlu…

Gjafaleikur og súkkulaðihristingur.

Ég er algjör súkkulaðifíkill og gæti vel borðað súkkulaði í öll mál, ég reyni þó að gæta hófs. Það er fátt sem kemst nálægt því að vera jafn dásamlegt og bragðgóður súkkulaði mjólkurhristingur. Þessi mjólkurhristingur er af einföldustu gerð og er mjög bragðgóður. Það er mikilvægt að velja sér ís með miklu súkkulaðibragði. Sá ís sem mér finnst bestur er GOTT súkkulaðiísinn. Alvöru súkkulaðibragð og þá þarf maður ekki að bæta kakódufti saman við til þess að fá rétta bragðið.   Súkkulaðihristingur af einföldustu gerð 2 kúlur súkkulaðiís 1/2 bolli mjólk Setjið saman í blandara. Hellið í glas og sigtið smá kakódufti yfir.  (Smakkið hristinginn áður en þið hellið honum í glas því ef til vill þá viljið þið meiri súkkulaðibragð og þá bætið þið smá…

Djúsí samloka

Mér finnst svo agalegt gott þegar að ég næ að útbúa mér eitthvað sáraeinfalt og ferskt í hádeginu.  Ég geri mér þetta salat ansi oft, ég nota salatið á gróft brauð eða á hrökkbrauð. Mér finnst best að rista brauðið ef ég er ekki með hrökkbrauð, en það er nú bara smekksatriði.  Þetta er ekki bein uppskrift heldur einungis hugmynd að léttum hádegisverði, ég dassa mig alltaf til og frá svo ég veit aldrei hvað ég læt mikið af hverju í þetta salat.  Hér kemur innihaldið, en það er langbest að dassa sig áfram.  túnfiskur í dós, í vatni klettasalat, smátt saxað kirsuberjatómatar, smátt saxaðir avókadó, smátt saxað paprika, smátt söxuð rauðlaukur, smátt saxaður ólífuolía salt og nýmalaður pipar steinselja, smátt söxuð Öllu blandað vel…

Laugardagslúxus

 Morgunstund gefur gull í mund.  Þessi laugardagsmorgun byrjaði aðeins vel og nú ligg ég upp í sófa, búin að borða yfir mig af laugardagskræsingum. Ég ætla að liggja hér svolítið lengur og fara síðan í göngutúr í þessu yndislega veðri. Svo er það bara lærdómur og huggulegt sem einkenna þennan laugardag.  Það er vissulega tilefni til þess að gera vel við sig á laugardögum, í mínum dagbókum þá eru þeir heilagir nammidagar. Þessi dagur var aldeilis ekki undantekning og naut ég þess að borða beikon, egg, rúnstykki og amerískar pönnukökur.   Amerískar pönnukökur með jarðaberjum og súkkulaðisósu. Það er erfitt að koma orðum að því hvað þetta er dásamlega gott.  HÉR finnið þið uppskrift af dásamlegum amerískum pönnukökum.  Fersk íslensk jarðaber.  Ljúffengur morgunmatur á góðum laugardegi  Virkilega…

Föstudagshuggulegheit

 Ég er komin í sveitina ásamt ansi góðu fólki, litli bróðir minn og hans kærasta komu með okkur Hadda í sveitina. Við byrjuðum auðvitað á því að fá okkur góðan göngutúr og skoðuðum Seljalandafoss.  Ég og Brynja völdum ekki sniðuga skó fyrir göngutúrinn, en það er nú önnur saga.  Það er svo ansi skemmtilegt að labba bakvið fossinn. Dásamlegt umhverfi.   Þegar að við komum heim þá var okkur fremur kalt svo ég ákvað að gera heitt súkkulaði með jóla ívafi. Ég sauð mjólk með kanilstöngum og negulnöglum, sigtaði það síðan frá mjólkinni og bætti við nokkrum bitum af dökku súkkulaði og nokkrum tsk. af sykri.  Þeytti rjóma til þess að hafa með, það er alltaf tilefni fyrir rjóma og rjóminn gerir heita súkkulaðið enn betra.  lokum dreifði…

Bláberjaboozt

Það er ekkert sem jafnast á við ferskt og gott boozt í morgunsárið. Ég nota yfirleitt frosin ber og booztin verða betri fyrir vikið að mínu mati. Ísköld og ljúffeng, alveg eins og að borða góðan ís.  Það tekur enga stund að gera boozt, ég nota það sem ég á í ísskápnum og frystinum hverju sinni. Í morgun þá gerði ég mér bláberja boozt og hann var sérlega góður.  Bláberjaboozt 2 bollar frosin bláber  1 banani  1 msk hörfræ  1 lítill dós af vanilluskyri  150 ml superberries safi (magn er í raun eftir smekk, þið prufið ykkur til) Rifinn engiferrót, magn eftir smekk Allt sett í blandarann í nokkrar mínútur.  Það er nóg fyrir stafni í dag svo það var algjör nauðsyn að byrja daginn…

Andlitsmaski

Ég er með þurra húð og ég finn það svo sannarlega þegar það kólnar að húðin verður sérstaklega þurr. Ég reyni því að vera dugleg að bera á mig andlitsmaska og rakakrem.  Ég keypti mér andlitsmaska frá Académíe fyrir nokkrum vikum. Aprikósu maski sem er að mínu mati ansi góður og mæli ég með honum. Hann er á mjög fínu verði og dugir ansi lengi.  Maskinn er í fljótandi formi og lyktin af honum er ansi góð, ég spái mikið í lyktinni þegar að ég kaupi mér snyrtivörur. Það eina sem maður þarf að gera er að bera maskann á andlitið, bíða með hann á andlitinu í 20 – 30 mínútur, þá er hann orðinn ágætlega harður. Þegar maskinn er þveginn skal varast að nota…

Bleikur sunnudagsbakstur

 Október er mánuður Bleiku slaufunnar. Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í báráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Árlegur meðafjöldi krabbameina hjá íslenskum konum er um 660. Það er skylda okkar að styðja baráttuna gegn krabbameini hjá konum og vera með slaufuna sýnilega. Mamma mín greindist með krabbamein þegar hún var einungis 28 ára gömul þá þriggja barna móðir, eldri systir mín var 10 ára, ég tveggja ára gömul og litli bróðir minn árinu yngri. Ég get ekki ímyndað mér áfallið sem mamma gekk í gegnum og fólkið okkar, við vorum of lítið til þess að skilja hvað gekk á en ég man samt eftir skurðinum á hálsinum á mömmu – hálf skýjuð minning en ég man hvað plásturinn var stór. Ég þakka æðri máttarvöldum fyrir að…

1 37 38 39 40 41 80