Laxa tacos
Uppskrift.
- 600 – 700 g lax, skorinn í litla teninga
- 2 msk ólífuolía
- 1 tsk paprikukrydd
- 1 tsk cumin krydd
- salt og pipar, magn eftir smekk
- 1 hvítlauksrif
Við steikingu:
- 1 msk ólífuolía
- 1 límóna
- 1 msk sesamfræ
Aðferð:
Skerið laxinn í jafn stóra bita, kryddið til með kryddunum sem eru talin upp hér að ofan og bætið olíunni saman við. Rífið niður hvítlauk og bætið honum saman við.
Hitið ólífuolíu á pönnu, steikið fiskinn í nokkrar mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Sáldrið sesamfræjum yfir fiskinn í lokin og kreistið safann úr hálfri límónu yfir fiskinn.
Blandið laxinum saman við mangósalsa og berið fram í tacoskeljum.
Mangósalsa
- 1 ferskt mangó í teningum
- 1 rauðlaukur, meðalstór fínsaxaður
- ½ agúrka, smátt skorin
- ½ rauð paprika
- 1 stór tómatur, fínt skorinn
- 1 msk fínsaxaður kóríander
- safi og rifinn börkur af ½ límónu
- 1 tsk gróft salt
- Ferskmalaður svartur pipar, magn eftir smekk
Aðferð: Skerið hráefnin afar smátt niður og blandið saman í skál, kryddið til með salti og pipar og kreistið safann úr límónunni yfir. Geymið salsa í kæli áður en þið berið það fram.
Hitið tacoskeljar í ofni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, þið getið auðvitað notað heilhveitivefjur líka. Berið laxinn fram í tacoskeljum og hellið vel af sósu yfir rétt áður en þið berið skeljarnar fram.
Einföld kóríandersósa
- Handfylli kóríander
- 1-2 msk ólífuolía
- Salt og pipar
- 2 dl sýrður rjómi
- Rifinn börkur af ¼ límónu
Aðferð:
Merjið kóríander og ólífuolíu í mortéli eða í matvinnsluvél, blandið kóríanderblöndunni saman við sýrða rjómann og rífið niður börk af límónu. Kryddið til með salti og pipar.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.