Pulled pork hamborgarar með hrásalati

Pulled pork hamborgarar með hrásalati

Hamborgarabrauð

  • 470 g hveiti
  • 3 tsk þurrger
  • 1 tsk hunang
  • 250 g volgt vatn
  • 1 tsk salt
  • 1 dl ólífuolía
  • 1 egg, pískað

Ofan á :

  • Egg
  • Sesamfræ

Aðferð:

Setjið þurrger og hunang út í volgt vatn og hrærið, um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin og þá má bæta hveitinu, saltinu, pískuðu eggi og ólífuolíu saman við. Þegar deigið er orðið þétt og fínt þá stráið þið hveiti á borðflöt og hnoðið deigið.  Setjið deigið í hreina skál og leyfið því að hefast í um það bil klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.

Skiptið deiginu í jafn stóra bita og mótið hvern bita í kúlu, leggið þær síðan á pappírsklædda ofnplötu og penslið eggi yfir ásamt því að sáldra sesamfræjum yfir bollurnar rétt í lokin. Bakið við 210°C í 15-18 mínútur eða þar til hamborgarabrauðin eru orðin gullinbrún.

Pulled pork – hægeldað svínakjöt

  • 700-800 g úrbeinaður svínahnakki
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk cumin krydd
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • Salt og pipar, magn eftir smekk ca. 1 tsk af hvoru
  • 1 laukur
  • 1 msk ólífuolía
  • 2 dl bbq sósa
  • 200 ml bjór

Aðferð: Hitið olíu í potti, kryddið kjötið með kryddunum sem eru talin upp hér að ofan. Brúnið kjötið á öllum hliðum, skerið niður lauk og bætið lauknum og bbq sósunni út í pottinn. Hellið bjórnum í pottinn og leyfið sósunni að ná suðu. Setjið lok á pottinn og setjið inn í ofn og eldið í 3-6 klst (því lengur, því mýkra verður kjötið) við 140°C.

Þegar kjötið er tilbúið er það rifið niður og meiri bbq sósu er bætt við, magnið fer eftir smekk.

Hrásalat með chili majónesi

  • 2 dl majónes
  • 1-2 msk chilimauk, magn eftir smekk
  • Salt og pipar
  • ½ höfuð ferskt rauðkál
  • 4 gulrætur
  • Handfylli spínat
  • 2 msk kóríander
  • Safi úr hálfri límónu
  • Salt og pipar

Aðferð:

Blandið saman majónesi og chilimauki,  kryddið til með salti og pipar.

Rífið niður ferskt rauðkál og gulrætur, saxið niður spínat og kóríander og blandið öllum hráefnum saman við chilisósuna. Kreistið safann úr límónu yfir og kryddið til með salti og pipar. Berið fram með hamborgurunum.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *