Archives for júní 2012

New York

 Byrjaði gærdaginn á því að fara í Magnolia Bakery, komst í kökuvímu, keypti mér krúttlegar bollakökur og límónaði, fann mér góðan stað í Central park, sólaði mig, borðaði kökur og skoðaði nýju kökubókina mína sem ég keypti í þessu dásamlega bakarí. Ég hef sjaldan verið jafn sátt og sæl á…

Þjóðhátíðarboð

Mæli svo sannarlega með nýjasta tölublaði Gestgjafans, undir berum himni. Sumarlegar uppskriftir og sumarkokteilar ráða ríkjum í þessu tölublaði.  Ég gerði þátt um þjóðhátíð, þjóðhátíðarboð. Nokkrar uppskriftir sem eiga vel við á  þjóðhátíðardaginn. Ég vona að morgundagurinn verði ykkur góður því við eigum svo sannarlega að njóta hans, dagur okkar…

Minneapolis

Kom heim í morgun frá Minnepolis. Fór þangað í fyrsta sinn í fyrra svo það var gaman að koma aftur, ansi hugguleg borg. Var svo heppin að vera með góðu fólki svo ferðin var mjög skemmtileg.   Borðuðum á dásamlegum stað, í forrétt fengum við bruschettu sem var algjört æði.  Þetta…

Sumarlegar bollakökur

Sumarlegar og sætar bollakökur. Þessar bollakökur eru einstaklega einfaldar. Mér finnst voðalega gaman að baka bollakökur og skreyta þær. Þær eru  einstaklega góðar nýkomnar út úr ofninum með engu kremi, nýbökuð bollakaka og ísköld mjólk. Fátt sem jafnast á við það. Það er hægt að bæta berjum við þessa uppskrift t.d….

Pestókjúklingur

Pestókjúklingur Ég er einstaklega hrifin af þessum rétt, mjög einfaldur og fljótlegur. Kjúklingurinn verður svo safaríkur og góður í pestósósunni.  Gott er að bera kjúklinginn fram með fersku salati, hrísgrjónum og hvítlauksbrauði. Fyrir 4 – 5 manns.(Eins og þið sjáið á myndum hér fyrir neðan þá tvöfaldaði ég uppskriftina) 5…

Summertime

 Góð helgi að baki í sveitinni. Fórum í útskriftarveislu hjá frænda hans Hadda, hittum gott fólk, borðuðum góðan mat og drukkum vín. Det var så dejlig! Það er líka svo gaman að keyra um landið okkar, ég og Haddi höfum ákveðið að vera dugleg við að ferðast innanlands í sumar….

Góða helgi

Þessi vika hefur liðið afskaplega hratt. Nú er ég byrjuð í sumarvinnunni.  Það er svo gaman að hitta vinnufélagana á ný og mér finnst agalega skemmtilegt í vinnunni.  Byrjaði á því að fara í morgunflug og fer í annað morgunflug í fyrramálið.  Eftir vinnu á morgun ætlum við Haddi að…

1 2