Yndislega yndislega veður – ég elska hvað það er búið að vera gott veður undanfarið, helgin fékk þó mínus í veðrakladdann en en, gaman hvað allt verður einfaldara og betra þegar að sólin skín.

Í gær fór ég til Stokkhólms og í dag fór ég í Noregsferð, semsé til Bergen og Þrándheims. Bæði morgunflug – ég ætla bara aldrei að læra.. að sofa vel. Svaf í rúma klukkustund fyrir fyrstu morgunvaktina – það var snilld, skreið svo upp í rúm í gær og steinsofnaði ansi snemma, en var þá vel sofin í morgun. Ég ætla að fara að passa upp á svefninn – mikil ósköp sem maður verður ónýtur eftir lítinn svefn.

Í kvöld fór ég í mat til ömmu og afa upp í bústað, mamma grillaði og ég sá um eftirrétt. Huggulegra verður það bara ekki.


Þrándheimur í dag – yndislegt veður í Noregi


Haddi á erfiða konu, honum finnst ég vandræðaleg sem er hneisa 🙂

Strike a pose

Fallega Hafnarfjall


Fallegu strákarnir mínir

Svolítið gaman þegar að Eyja kemur með pakka frá útlandinu

Fallegust mæðgurnar
Rík frænka

xxx

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *