Vöfflur með vanillurjóma og karamelliseruðum pekanhnetum
- 4 egg
- 400 ml súrmjólk
- 300 g hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 2 msk sykur
- 1/2 tsk salt
- 2 tsk vanilludropar
- 4 msk smjör, brætt
Aðferð:
- Þeytið egg og súrmjólk saman.
- Blandið þurrefnum saman í skál, bætið eggjablöndunni og smjörinu saman við og hrærið vel saman.
- Hitið smá smjör í vöfflujárninu og steikið hverja vöfflu í nokkrar mínútur. Berið fram með vanillurjóma, sultu og karamelliseruðum pekanhnetum.
Karamelliseraðar pekanhnetur
- 1 poki pekanhnetur
- 50 g sykur
- 1 msk smjör
- rjómi, magn eftir smekk
Aðferð:
- Bræðið sykur á pönnu.
- Þegar sykurinn er uppleystur bætið þið smjörinu út á pönnuna og hrærið í. Saxið hneturnar og setjið út á pönnuna, steikið í 1 – 2 mínútur. Hellið rjóma út á blönduna og hrærið aðeins saman.
Vanillurjómi
- 250 ml rjómi
- 2 tsk vanillusykur
Aðferð:
1. Setjið rjóma og sykur í skál og þeytið þar til rjóminn er orðinn léttþeyttur.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup.