Vöfflur með vanillurjóma og karamelliseruðum pekanhnetum

Vöfflur með vanillurjóma og karamelliseruðum pekanhnetum

  • 4 egg
  • 400 ml súrmjólk
  • 300 g hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 2 msk sykur
  • 1/2 tsk salt
  • 2 tsk vanilludropar
  • 4 msk smjör, brætt
Aðferð:
  1. Þeytið egg og súrmjólk saman.
  2. Blandið þurrefnum saman í skál, bætið eggjablöndunni og smjörinu saman við og hrærið vel saman.
  3. Hitið smá smjör í vöfflujárninu og steikið hverja vöfflu í nokkrar mínútur. Berið fram með vanillurjóma, sultu og karamelliseruðum pekanhnetum.
Karamelliseraðar pekanhnetur
  • 1 poki pekanhnetur
  • 50 g sykur
  • 1 msk smjör
  • rjómi, magn eftir smekk
Aðferð:
  1. Bræðið sykur á pönnu.
  2. Þegar sykurinn er uppleystur bætið þið smjörinu út á pönnuna og hrærið í. Saxið hneturnar og setjið út á pönnuna, steikið í 1 – 2 mínútur. Hellið rjóma út á blönduna og hrærið aðeins saman.
Vanillurjómi
  • 250 ml rjómi
  • 2 tsk vanillusykur
Aðferð:
1. Setjið rjóma og sykur í skál og þeytið þar til rjóminn er orðinn léttþeyttur.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *