Franskt eggjabrauð

Um helgar er nauðsynlegt að gera vel við sig, það er svo notalegt að dúllast í
eldhúsinu í rólegheitum á morgnana. Hella upp á gott kaffi og útbúa gómsætan
morgunmat.
Um síðustu helgi eldaði ég franskt eggjabrauð (e. French toast)  eftir að hafa legið yfir uppskriftum að þessu
girnilega brauði þá ákvað ég að útbúa mína útfærslu. Þetta er svo gott að þið trúið því ekki, ég skil ekki afhverju ég var ekki verið búin að prófa að elda þetta brauð fyrr. Brauðið verður silkimjúkt með ljúffengum jarðarberjum og sírópi. Ég naut mín í botn þennan morgunin og vildi helst ekki að máltíðin tæki
enda. Það er afar heppilegt að nú sé helgin gengin í garð og þetta ljúfenga
brauð verður á boðstólnum hjá okkur í fyrramálið.
 
French Toast.
  • 4 stórar brauðsneiðar
  • 4 egg
  • 2 dl rjómi
  • 2 msk. appelsínusafi
  • Rifinn appelsínubörkur, um það bil matskeið
  • ½ tsk kanill
  • 1 tsk. Vanilluextract eða dropar
  • Smá skvetta af hlynsírópi eða
    ein teskeið sykur
Aðferð: Skerið brauðið niður í þykkar sneiðar. Pískið egg og rjóma léttilega saman. Bætið appelsínusafa, kanil, vanillu og
sírópi út í og hrærið vel. Hellið blöndunni yfir brauðsneiðarnar og snúið
þeim einu sinni við. Leyfið brauðinu að liggja í eggjablöndunni í 2 – 3 mínútur.
Hitið smjör á pönnu og steikið á hvorri hlið í nokkrar mínútur eða þar til
eggin eru elduð. Gætið þess að hafa ekki of háan hita á pönnunni. Berið brauðin fram
með ávöxtum og hlynsírópi. Njótið vel!

 

 

 

 

 

 

 Ég vona að þið eigið góða helgi kæru lesendur.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *