Ég er mikil kaffimanneskja og veit fátt betra en að fá mér góðan kaffibolla, mér finnst ég drekka of mikið af kaffi suma daga og hef verið að prófa mig áfram í tedrykkju. Ég hef ekki verið mikið fyrir te, en undanfarna daga þá hef ég verið að prófa tvær tegundir af te-um sem mér líkar svakalega vel við. Celestial te. Mér finnst gott að fá mér bolla af grænu te í morgunsárið og svo bláberjate á kvöldin.
Bláberjate, þetta er ótrúlega gott te. Lyktin er líka alveg dásamleg. |
Grænt te, mér finnst orðið voða fínt að fá mér einn bolla af grænu tei í morgunsárið. |
Ég vona að þið eigið góðan dag kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran