Taco tuesdays eða þriðjudagar undir mexíkóskum áhrifum eru komnir til þess að vera á Instastory hjá mér. Á hverjum þriðjudag ætla ég að deila með ykkur uppskrift að einföldum og bragðgóðum uppskriftum sem eiga það sameiginlegt að vera á mexíkósku nótunum. Ég vona að þið eigið eftir að fylgjast með næstu þriðjudaga. Hér er uppskriftin frá því í síðustu viku og þá útbjó ég ljúffeng kjúklingalæri á stökkri tortillavefju með fersku salsa.
Bragðmikil kjúklingalæri á stökkri tortillavefju
Uppskrift miðast við fjóra
- 800 g kjúklingalæri, beinhreinsuð
- 2 msk ólífuolía
- 1/2 límónu, börkur og safi
- 2 tsk paprikuduft
- 1 tsk kummin
- 1 tsk kjúklingakrydd
- 1 tsk allrahandakrydd
- Salt og pipar
- 1 rauð paprika
- 1 laukur
- Tortillavefjur
- Ferskt salsa, uppskrift hér að neðan
- Hreinn fetaostur
- Kóríander
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 200°C (blástur).
- Setjið kjúklingakjötið í skál ásamt ólífuolíu og þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan. Kreistið safann úr límónu yfir og rífið börkinn sömuleiðis yfir. Gott er að leyfa kjúklingakjötinu að liggja í marineringunni í svolitla stund í kæliskáp ef þið hafið tíma.
- Leggið kjúklinginn í eldfast mót, skerið papriku og lauk og dreifið yfir kjúklingakjötið. Setjið réttinn inn í ofn við 200°C í 25 mínútur.
- Berið kjúklinginn fram með stökkri tortillavefju sem þið steikið upp úr olíu, fersku salsa, hreinum fetaosti og smátt söxuðum kóríander.
Ferskt salsa
- 2 tómatar, kjarnhreinsaðir
- 1/2 laukur
- 1 lárpera
- 1/4 tsk chili
- Salt og pipar
- 1 msk ólífuolía
- 1/2 límóna
Aðferð:
- Saxið tómata, lauk og lárperu smátt og setjið í skál.
- Saxið chili mjög smátt og bætið út í ásamt ólífuolíu og límónusafa.
- Kryddið til með salti og pipar.
- Geymið í kæli þar til þið berið það fram.
Súper einföld og góð uppskrift sem ég mæli með að þið prófið.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.