Vikan flaug áfram og var yfir full af verkefnum sem er gott og blessað, en engu að síður þá hafði ég ekki mikinn tíma til þess að stíga fæti inn í eldhús og því hef ég verið ódugleg að setja uppskriftir hingað inn í vikunni. Að vísu gerði ég mjög fínan spaghettí rétt sem ég ætla að deila með ykkur seinna í dag.
Nú er ég komin upp í sumarbústað og ætla að vera hér yfir helgina. Helgin er tileinkuð skrifum og lærdómi. Það góða við að vera upp í bústað er að nettenging er af skornum skammti og ég fæ ekki þá löngun að skrúbba allt og bóna. Í próflestri þá heillar ekkert meira en að byrja að þrífa fyrir sumarið, ég ræð ekki við mig og verð að sortera fataskápinn áður en ég glósa, bara VERÐ. Hér í sveitinni er ekki fataskápur og það er heldur ekkert sérlega skemmtilegt veður svo ég sit bara hér á náttfötunum og er búin að vera að skrifa í morgun. Eftir hádegi ætla ég að skipta yfir í lærdóminn.
Það má nú samt ekki gleyma því að það er helgi og því nauðsyn að gera svolítið vel við sig, á eftir ætla ég að baka mér gott bananabrauð , það er svo gott með lestrinum. (allt fyrir lesturinn)
Ég vona að þið eigið góða helgi framundan kæru vinir.
xxx
Eva Laufey Kjaran.