SMJÖRSTEIKTUR HUMAR
- 1 kg humar í skel
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk ólífuolía
- Salt og pipar
- 1 tsk sítrónupipar
- 100 g smjör
- Handfylli fersk steinselja
- 1 sítróna + fleiri sem meðlæti
Aðferð:
- Hreinsið humarinn með því að klippa hann í tvennt, takið görnina úr og skolið vel undir köldu vatni. Þerrið humarinn vel áður en þið steikið hann.
- Hitið ólífuolíu og 1 matskeið af smjöri á pönnu, saxið niður 2 hvítlauksrif og steikið örstutt.
- Bætið humrinum út á pönnuna og kryddið til með salti, pipar og sítrónupipar.
- Saxið niður ferska steinselju og sáldrið yfir ásamt því að kreista safann úr hálfri sítrónu yfir.
- Bætið restinni af smjörinu út á pönnuna og blandið öllu vel saman, það tekur mjög stutta stund að elda humarinn eða um fimm mínútur í mesta lagi.
- Berið humarinn strax fram á pönnunni með góðu brauði og sítrónubátum.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.