SMJÖRSTEIKTUR HUMAR ÚR EINFALT MEÐ EVU

SMJÖRSTEIKTUR HUMAR

  • 1 kg humar í skel
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1 tsk sítrónupipar
  • 100 g smjör
  • Handfylli fersk steinselja
  • 1 sítróna + fleiri sem meðlæti

Aðferð:

  1. Hreinsið humarinn með því að klippa hann í tvennt, takið görnina úr og skolið vel undir köldu vatni. Þerrið humarinn vel áður en þið steikið hann.
  2. Hitið ólífuolíu og 1 matskeið af smjöri á pönnu, saxið niður 2 hvítlauksrif og steikið örstutt.
  3. Bætið humrinum út á pönnuna og kryddið til með salti, pipar og sítrónupipar.
  4. Saxið niður ferska steinselju og sáldrið yfir ásamt því að kreista safann úr hálfri sítrónu yfir.
  5. Bætið restinni af smjörinu út á pönnuna og blandið öllu vel saman, það tekur mjög stutta stund að elda humarinn eða um fimm mínútur í mesta lagi.
  6. Berið humarinn strax fram á pönnunni með góðu brauði og sítrónubátum.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *