Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ömmubakstur
Fyrir fimm – sex
- 2 msk sykur
- 500 g vanilluskyr
- 250 ml rjómi, þeyttur
- 1 tsk vanilludropar
- 1 poki kleinur frá Ömmubakstri (12 kleinur, ca 250 g)
- 6-7 dl sterkt uppáhellt kaffi
- Gott kakó, magn eftir smekk
- Súkkulaði, smátt saxað
- Ber til að skreyta
Aðferð:
- Stífþeytið rjóma ásamt tveimur matskeiðum af sykri.
- Blandið skyrinu og vanilludropum varlega saman við rjómann.
- Þrýstið aðeins á kleinurnar eða kremjið öllu heldur, veltið kleinunum upp úr heitu kaffi og skiptið þeim niður í skálar, glös eða eitt stórt fat.
- Setjið helminginn af skyrblöndunni ofan á kleinurnar, stráið svolitlu kakói yfir og smátt söxuðu súkkulaði. Endurtakið leikinn þar til hráefnið er búið.
- Í lokin er stráð vel af kakói og smátt söxuðu súkkulaði yfir réttinn.
- Kælið í 3 – 4 klukkustundir áður en þið berið fram, frábært að gera degi áður en þið ætlið að bera hann fram.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir