Mér finnst voða gott að byrja daginn á að búa mér til góðan safa eða gott boozt. Ég geri alltaf svolítið mikið svo ég á nóg til í ísskápnum. Það er gaman að prófa sig áfram í safa- og booztgerð. Ég á nokkra uppáhalds og ég ætla að deila með ykkur uppskrift að sex drykkjum sem ég mæli með að þið prófið.
Avókadó drykkurinn góði |
Berja booztið dásamlega |
Sá græni og góði |
Rauðrófusafinn fallegi |
Græn orkubomba |
Appelsínu-og gulrótarsafi |
Ég mæli með að þið prófið ykkur áfram í boozt-og safagerð. Það er einfaldara en margan grunar, það eina sem til þarf eru góðir ávextir og blandari. Í samstarfi við Kost og Lemon þá ætla ég að gefa heppnum lesanda 10.000 króna gjafabréf hjá Kosti, þar er frábært úrval af ávöxtum og grænmeti. Á fimmtudögum er 50% afsláttur af ávöxtum og grænmeti. Ég mæli þess vegna með að þið nýtið gjafabréfið á fimmtudögum.
Sælkerasamloku- og djússtaðurinn Lemon ætlar einnig að gefa þessum heppna lesanda sælkeramáltíð á Lemon. Það er dásamlegt að fá sér góðan safa og góða samloku á Lemon. Mitt uppáhald er Djangó safinn og Parmella samlokan.
Það eina sem þú þarft að gera lesandi góður til þess að eiga möguleika á því að næla þér í gjafabréfin er að skrifa nafn og netfang í athugasemdakerfið hér fyrir neðan og gefa blogginu like á Facebook, ef þú ert nú þegar búin/n að gefa blogginu like þarftu einungis að skrifa nafn og netfang í athugasemdakerfið. Ég dreg út heppinn vinningshafa föstudaginn 11.október!
Bestu kveðjur til ykkar
xxx
Eva Laufey Kjaran