- 1 bolli (3 dl) frosin blönduð ber
- 1 bolli (3dl) frosið mangó
- 170 g jarðarberjaskyr
- 2 msk. chia fræ (sem legið hafa í bleyti í a.m.k. 10 mín)
- 1 tsk hunang
- Klakar
- 1 dl ávaxtasafi til dæmis epla
Aðferð:
1. Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið, hellið blöndunni í skál og skreytið gjarnan með bláberjum, jarðarberjum og kókosmjöli.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.