Ég ætla að deila með ykkur uppkrift að dásamlegum ofnbökuðum camenbert, þessi uppskrift er í bókinni minni Matargleði Evu. Ég er sérstaklega hrifin af ostum og gæti borðað þá í öll mál, ofnbakaðir ostar eru i´sérstöku uppáhaldi. Ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift um helgina. Fullkomið sem forréttur eða eftirréttur… svo gott að narta í góða osta á kvöldin. Sérstaklega í góðum félagsskap. Hér kemur uppskriftin, ég vona auðvitað að þið njótið vel.
Bakaður camenbert er auðvitað algjört lostæti,
hann einn og sér bræðir öll hjörtu.
- 1 camembert
- 1 msk smjör
- 2 tsk góð fíkjusulta
- handfylli heslihnetur
- fersk hindber og bláber
Aðferð:
- Bræðið smjör, penslið ostinn með smjöri og leggið ostinn í eldfast mót.
- Snöggsteikið heslihneturnar í smjörinu sem er eftir. Það er algjört smekksatriði hvað maður notar mikið af hnetum og þið getið notað hvaða hnetur sem er.
- Setjið væna skeið af fíkjusultunni yfir og í lokin hneturnar.
- Bakið ostinn við 180°C í 8 – 10 mínútur.
- Dreifið ferskum berjum yfir ostinn þegar hann er kominn út úr ofninum, berið fram með ristuðu brauði eða kexi.
Njótið vel.
Eva Laufey K. Hermannsdóttir