Nautalund með bernaise og piparostasósu

 

Í síðustu viku fengum við góða gesti í mat og mig langaði til þess að bjóða
þeim upp á eitthvað svakalega gott, ég fór út í Hagkaup og það fyrsta sem fangaði auga mitt í kjötborðinu var girnileg nautalund og sömuleiðis gargaði Bernaise
sósan á mig sem var þarna líka. Ég stóðst ekki mátið, keypti kjötið,
sósuna og gott meðlæti. Máltíðin var afar ljúffeng, ég byrjaði á því að elda
kartöflurnar og á meðan þær voru í ofninum eldaði ég kjötið. Eldunin var afar
einföld eða alveg eins og okkur þykir kjötið best. Hér kemur uppskriftin að
nautalund með Hasselback kartöflum og piparostasósu. (Bernaise sósan var keypt
í þetta sinn og því fylgir ekki uppskrift haha).
Nautalundir 
  • Ólífuolía
  • 800 g nautalund
  • Smjör
  • Salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
  1. Hitið olíu á pönnu, kryddið kjötið með salti og pipar og setjið á pönnuna. Það er afar mikilvægt að pannan sé mjög heit.
  2. Steikið kjötið á öllum hliðum þar til það verður brúnt og fallegt, í lokin bætið þið smjörklípu út á pönnuna og hellið smjörinu yfir kjötið.
  3. Setjið kjötið í eldfast mót, hækkið hitann á ofninum í 200°C og eldið kjötið í 10 – 12 mínútur.
  4. Leyfið kjötinu að hvíla í 8 – 10 mínútur áður en þið skerið það í bita.
  5. Þessi steiking er medium/medium rare.

 

Hasselback kartöflur
  • Stórar bökunarkartöflur, magn eftir smekk
  • Smjör
  • Ólífuolía
  • Salt
Aðferð:
  1.  Skerið bökunarkartöflunar í tvennt  og skerið raufar niður í þær með stuttu millibili án þess að skera alveg í tvennt.
  2. Hellið vel af olíu í eldfast mót og raðið kartöflunum í fatið. Setjið nokkrar smjörklípur í fatið og saltið vel.
  3. Bakið við 180°C í 40 – 45 mínútur. Mér finnst gott að snúa þeim við einu sinni til tvisvar og vökva þær með olíunni og smjörin af og til. Þannig tryggjum við að þær verði stökkar að utan og mjúkar að innan.

 

 

Piparostasósan vinsæla
  1. 500 ml matreiðslurjómi
  2. ½ piparostur – eða meiri, smekksatriði
  3. ½ kjúklingateningur
Aðferð:
  1. Bræðið piparostinn í matreiðslurjómanum við vægan hita.
  2. Bætið kjúklingatening saman við og hrærið vel í sósunni.
  3. Berið fram með kjötinu og njótið.

 

 

Einfalt og ferskt salat með jarðaberjum og fetaosti.

 

 

Góður kaffibolli og súkkulaðimoli er nauðsyn eftir svona lúxusmáltíð, ég var of gráðug og búin að borða súkkulaðið þegar myndin var tekinn.
Ég vona að þið njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *