Á morgnana eða seinni partinn, já eða bara hvenær sem er yfir daginn elska ég að skella í hristing sem keyrir upp orkuna. Uppskriftin hér að neðan er í miklu uppáhaldi hjá mér en ég elska döðlur, elska hnetusmjör og öll þau hráefni sem finna má í þessum ljúffenga hristing. Ferskt, einfalt og fljótlegt! Ég lofa að þið eigið eftir að gera þennan aftur og aftur.
Hristingur með hnetusmjöri og döðlum
- 200 g vanilluskyr
- 1 banani
- 4 döðlur
- 1 msk gróft hnetusmjör
- 1/2 msk chiafræ eða önnur fræ t.d. hörfræ
- appelsínusafi, magn eftir smekk
- klakar
Aðferð: Setjið allt í blandarann og blandið þar til drykkurinn verður silkimjúkur. Berið strax fram og njótið!
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Allt hráefnið sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups.