Ég er ansi hrifin af ostakökum og skyrkökum.
Famelían ætlar að koma til mín í kvöld og langaði mig til þess að bjóða þeim upp á eitthvað gott, eitthvað sem tekur ekki mikinn tíma til þess að laga og er tiltölulega einfalt.
Ég ákvað að laga þessar mini-ostakökur því mér finnst þær bæði svakalega góðar og fallegar að bera fram.
Mjög einföld og fljótleg uppskrift.
Þessi uppskrift er fyrir 4 – 5 manns.
Uppskrift
140 gr. Digestive kexkökur
50 gr. Lu Bastogne kexkökur
120 gr. Smjör, brætt.
1 msk. Púðursykur
25 gr. Flórsykur
200 gr. Philadelphia rjómaostur/ Eða vanilluskyr
120 gr. Rjómi
120 gr. Dökkt súkkulaði, brætt.
Fræ úr 1/2 vanillustöng
1 tsk. Vanilla Extract
Fersk ber að eigin vali, ég notaði hindber í þetta sinn.
Hvítt súkkulaði til skreytingar
Aðferð
- 1. Kex, púðursykur og smjör sett í matvinnsluvél þar til þetta verður orðið að fínni blöndu líkt og sést á mynd hér fyrir neðan.
- Þeytið rjóma,bætið flórsykrinum, vanillu fræjum og vanilla extract saman við. Ég lét rjómablönduna í aðra skál í augnablik á meðan að ég lét rjómaostinn í hrærivélina í smá stund, svo blandaði ég rjómablöndunni saman við rjómaostinn. Blandið þessu vel saman í hrærivél í um það bil tvær mínútur.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði.
- Þá er að finna til skálar, mér finnst þó ansi lekkert að bera kökuna fram í fallegum glösum. Hæfilega mikið í hverju glasi vegna þess að oft vill maður bara smá sætt eftir þunga máltíð.
- Kexblandan fer fyrst í glasið, svo vel af ostablöndunni, ein skeið af bræddu súkkulaði, smá kex ofan á, aðeins meiri ostablanda, aftur smá súkkulaði og síðan fersk ber. Rífum svo niður hvítt súkkulaði á toppinn. Það gefur eftirréttinum extra gott bragð.
- Það er hægt að bera kökuna strax fram en ég mæli þó með því að hún verði í kæli í 2 – 3 klst áður en þið berið hana fram.
Ég vona að þið njótið vel. Ég er mjög spennt að fá mér þennan eftirrétt í kvöld.
Það væri nú ekkert fjör ef við hefðum ekki eftirrétti.
xxx
Eva Laufey Kjaran