Þessi helgi er búin að vera aðeins of hugguleg, í gær var uppáhaldið mitt og yndi, semsé júróið! Ég var samt ekki ánægð með úrslitin – en ég er þó handviss um að við sigrum að ári. :o) Ég fékk góða gesti og það var fyrir öllu að hafa gaman með góðu fólki…
Í dag á hann Steindór Mar afmæli, ég fékk hann næstum því í afmælisgjöf, því ég ætla að verða árinu eldri á morgun 🙂 Í tilefni dagsins þá sló Maren upp afmæliskaffi í skógræktinni, grill og muffinspartí. Veðrið er líka búið að vera yndislegt svo það er ekki annað hægt en að smæla.