Gúllassúpan hennar mömmu

Þetta veður kallar á góða og matarmikla súpu, við þurfum mat sem hlýjar okkur að innan á köldum rigningardögum. Það er eins og hellt sé úr fötu! Ég verð að viðurkenna að það er sérstaklega notalegt að vera heima við á svona dögum, ég þarf þó að koma mér út í matarbúð fljótlega. Mig vantar hráefnin í þessa súpu sem er að mínu mati ein sú allra besta. Gúllas, beikon, rófur og fleiri ljúffeng hráefni saman í eitt. Uppskrift sem klikkar ekki. Ég mæli með að þið prófið þessa uppskrift kæru lesendur.
Gúllasdraumur
 
Uppskrift
miðast á við fjóra til fimm manns.
  • 600 – 700 g nautagúllas
  • 2 msk ólífuolía
  • 3 hvílauksrif, marin
  • 1 meðalstór laukur, smátt skorinn
  • 2 rauðar paprikur, smátt skornar
  • 2 gulrætur, smátt skornar
  • 1 sellerístöng, smátt skorinn
  • 1 msk fersk söxuð steinselja
  • 5 beikonsneiðar, smátt skornar
  • 1 ½ l vatn
  • 2  nautakraftsteningar
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1 meðalstór rófa, skorinn í litla bita
  • 5 – 6 kartöflur, skrældar og niðurskornar
  • Saltog pipar, magn eftir smekk
  • 1 tsk kummin
  • 1 tsk paprikuduft
Aðferð:
  1. Hitið olíu við vægan hita í potti, mýkið hvítlauk og lauk í smá stund.
  2. Bætið nautakjötinu, paprikum, gulrætum, sellerí, steinselju og beikoni saman við og
    brúnið í 5 – 7 mínútur.
  3. Bætið vatninu og teningum saman við, hrærið vel í.
  4. Setjið tómatana, tómatpúrru, rófu, karöflur ofan í súpuna.
  5. Kryddið til með salti, pipar, paprikukryddi og kummin.
  6. Leyfið súpunni að malla í 30 – 40 (eða lengur) mín við vægan hita.
  7. Berið súpuna fram með brauði og sýrðum rjóma.
Njótið vel!
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *