Þegar ég á afgang af kjúkling þá finnst mér tilvalið að búa til kjúklinga- og spinatböku. Bakan er bæði mjög einföld og svakalega góð. Þið getið auðvitað notað hvaða fyllingu sem þið viljið og það er ágætt að nota bara það sem þið eigið til í ísskápnum hverju sinni. Þið getið notað spelt eða venjulegt hveiti í botninn á bökunni. Það fer eftir ykkar smekk. Mæli með að þið prófið að útbúa gómsæta böku.
Kjúklinga-og spínatbaka.
Botn:
- 2 bollar fínmalað spelt, bollinn sem ég notaði rúmar 237 ml.
- 100 g smjör, skorið í teninga
- 100 ml kalt vatn
- smá salt
Aðferð:
Skerið smjörið í litla teninga, blandið smjörinu, speltinu og saltinu saman með höndunum í skál. Bætið síðan vatninu saman við smám saman. Smjörið þarf að blandast vel saman við speltið svo það tekur nokkrar mínútur. Sláið deiginu upp í myndarlega kúlu , setjið plastfilmu utan um og geymið í kæli í lágmark 30 mínútur.
Takið deigið út úr ísskápnum og fletjið út. Smyrjið bökunarform og setjið deigið í formið. Potið nokkrum sinnum í deigið með gaffli og bakið við 180°C í 8 – 10 mínútur.
Fylling:
- 1 msk ólífuolía
- 400 – 500 g kjúklingakjöt
- 1 rauð paprika, smátt skorin
- 1/2 rauðlaukur, smátt skorinn
- 2 bollar spínat, smátt skorið
- 2 tómatar
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður
- 1 lítil dós kotasæla
- 4 egg
- 80 ml mjólk
- salt og nýmalaður pipar
- 1 tsk ítölsk kryddblanda
- rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk
Aðferð:
Hitið olíu í pönnu, skerið grænmetið mjög smátt og steikið við vægan hita. Þegar grænmetið er orðið mjúkt þá bætið þið spínatinu saman við og foreldaða kjúklingnum og leyfið þessu að malla á pönnunni í nokkrar mínútur. Takið pönnuna af hitanum og blandið einni dós af kotasælu saman við. Kryddið til með salti og pipar. Hellið blöndunni í bökuskelina. Pískið egg og mjólk léttilega saman og hellið yfir blönduna. Dreifið osti yfir í lokin og bakið við 180°C í 30 – 35 mínútur, eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.
Berið bökuna fram með fersku salati og góðri dressingu
Lyktin af bökuni er dásamleg. Ég fékk mjög gott bökunarform í IKEA á mjög fínu verði. Það er sérlega gott að baka bökur í þessu formi.
Einföld, fljótleg og ljúffeng máltíð.
xxx
Eva Laufey Kjaran