Birtan var svo fín í gær þegar sólin ákvað að skína örlítið. |
AB mjólk, special K og bláber í morgunsárið. |
Nú eru liðnir tveir mánuðir frá því að við fluttum hingað í Vesturbæinn og okkur líður mjög vel. Mér finnst Vesturbærinn eiginlega vera eins og lítill bær, eins og Akranes. Stutt í allt og mjög þægilegt að vera hér. Íbúðin okkar verður líka heimilislegri með hverjum deginum og nú vantar mig bara nokkrar myndir á vegginn og þá ætti allt saman að vera komið í bili.
Það er líka sérstaklega notalegt að geta unnið heima fyrir þennan morgunin því veðrið úti er lítið spennandi. En ég þarf nú samt að koma mér af stað í nokkur verkefni eftir hádegi. Ég hef þó klukkustund til þess að hlusta á Coldplay og dunda mér í rólegheitum. Það finnst mér ansi fínt.
Ég vona að þið eigið góða helgi framundan.
xxx
Eva Laufey K. Hermannsdóttir