Grilluð eplakaka með súkkulaði og kókosmulningi

Grilluð eplabaka með karamellusósu

Eplabaka

  • 6  stór græn epli
  • 2 msk. sykur
  • 2 tsk kanill
  • 1 tsk. vanillusykur eða vanilludropar
  • 50 – 60 g. Hakkað súkkulaði

Mulningur

  • 80 g. hveiti
  • 80 g. sykur
  • 80 g. smjör
  • 50 g. Kókosmjöl

Aðferð:

Hitið grillið. Flysjið eplin, fjarlægið kjarna og stilka. Skerið eplin í litla bita og dreifið eplabitunum í álform sem má fara á grillið. Blandið sykri, vanillusykri og kanil saman við eplin. Sáldrið súkkulaðinu yfir eplin. Næsta skref er að útbúa deigið sem fer ofan á eplin.

Setjið hveiti, sykri, smjöri og kókosmjöli í skál og blandið saman með höndunum. Setjið deigið ofan á eplin og grillið í um það bil 10 – 15 mínútur, tekur alls ekki langa stund að grilla kökuna og það þarf að fylgjast vel með henni á grillinu.

Á meðan að kakan er á grillinu er upplagt að útbúa ljúffenga karamellusósu.

Karamellusósa

  • 200 g sykur
  • 2 msk smjör
  • ½  – 1 dl rjómi
  • ½ tsk salt (sjávarsalt er best að mínu mati)

Aðferð: Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við 🙂

Berið kökuna fram með ís og nóg af karamellusósu!

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *