Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ömmubakstur
Baunasalat
- 2 – 3 dl majónes
- 1 bréf hangikjöt
- 1 dós niðursoðnar baunir og gulrætur
- ½ tsk sítrónupipar
- 2 egg
- Skonsur frá Ömmubakstri
Aðferð:
- Sjóðið eggin og kælið.
- Skerið niður hangikjötið í litla bita.
- Blandið öllum hráefnum saman í skál og kryddið með sítrónupipar. Ég setti 2 dl af majónesi í þessa uppskrift en fékk ábendingu að það mætti alveg vera meira og þess vegna setti ég 2 – 3 dl þar sem þetta er smekksatriði.
- Kælið salatið áður en þið berið það fram. Ég elska þetta salat á skonsum! Íslenskt og gott.
Þetta salat mun án efa vekja upp minningar, að minnsta kosti upplifði ég algjöra nostalgíu þegar ég borðaði þetta og namm hvað þetta er gott 🙂
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir