Kalt pastasalat sem tekur enga stund að búa til

  • Fyrir fjóra – sex
  • 350 g pasta að eigin vali
  • Handfylli basilíka
  • Handfylli spínat
  • 1 hvítlauksrif
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • 1 dl ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1 rauðlaukur
  • 1 rauð paprika
  • 12 kirsuberjatómatar
  • 2 dl fetaostur
  • Hnetukröns (blandaðar hnetur að eign vali + smá sojasósa)

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum og kælið þegar það er tilbúið.
  2. Útbúið einfalt pestó með því að setja basilíku, spínat, hvítlauk, safa úr hálfri sítrónu, ólífuolíu, salt og pipar í matvinnsluvél þar til pestóið er orðið fínt, þið stjórnið þykktinni með ólífuolíunni.
  3. Saxið rauðlauk, papriku og kirsuberjatómata smátt.
  4. Útbúið hnetukröns með því að þurrrista hneturnar á heitri pönnu og þegar þær eru gullinbrúnar bætið þið smá sojasósu út á og blandið vel saman.
  5. Blandið því næst öllum hráefnunum saman í skál og berið fram!

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *