Í Höfðingjum heim að sækja sótti ég leikkonuna
Önnu Svövu heim. Anna og unnusti hennar Gylfi, reka vinsælu ísbúðina Valdísi
sem hefur heldur betur slegið í gegn. Ég fékk að fylgjast með þeim bæði í
Valdísi og heima í eldhúsi þar sem þau töfruðu fram lax með gómsætu meðlæti.
Það var sérstaklega gaman að eyða deginum með þessu góða fólki og það var alls
ekki leiðinlegt að fá að smakka á gómsætum ís í Valdísi. Ég mæli með að þið
prófið þennan fiskrétt og farið svo beinustu leið í ísbúðina.

Fullkominn lax með ljúffengu hnetukurli.
- 1 laxaflak, ca. 1 kg.
- Olía
- Salt og pipar
Aðferð: Skolið fiskinn vel og skerið í jafn
stóra bita. Hitið olíu á pönnu og steikið laxabitana á hvorri hlið í 2 mínútur.
Kryddið laxinn með salti og pipar. Það getur verið gott að kreista smá
sítrónusafa yfir pönnuna rétt í lokin. Leggið laxabitana í eldfast mót og
dreifið hnetukurlinu yfir. Setjið laxinn inn í ofn við 180°C í 8 – 10 mínútur.

Hnetukurl.
- 70 g. Pekanhnetur, smátt saxaðar
- 70 g. Heslihnetur, smátt saxaðar
- Handfylli Steinselja, smátt söxuð
- 1 msk. Ólífuolía
Aðferð: Blandið öllu saman í skál og dreifið
yfir laxabitana áður en þeir fara inn í ofn.

Ljúffengt rótargrænmeti með eplum og fersku
dilli.
dilli.
- 1 rauðrófa (frekar stór eða tvær
litlar) - 1 meðalstórt grasker
- 1 sæt kartafla (fremur stór eða
tvær litlar) - 1 – 2 msk. ólífuolía
- 1 rautt epli, skorið í þunnar
sneiðar - 1 – 2 msk. Dill, smátt saxað
- Spínat, magn eftir smekk
- Baunaspírur, magn eftir smekk
- Sítrónusafi
- Salt og pipar, magn eftir smekk
Ofninn hitaður í 200°C. Rótargrænmetið er
skorið fremur smátt og raðað í eldfast mót. Passið ykkur á að blanda grænmetinu
ekki saman vegna þess að það kemur svo sterkur litur af rauðrófunni og hún
smitar í hitt grænmetið sem við viljum helst ekki. Hellið olíu yfir grænmetið
og kryddið til með salti og pipar. Setjið inn í ofn og bakið í 35 – 40 mínútur.
Þegar grænmetið er tilbúið þá bætið þið spínatinu, eplabitum, baunaspírum og dilli saman við
og blandið öllu vel saman. Gott er að kreista smá sítrónu yfir grænmetið í lokin.

Jógúrtsósa
- 1 dós grískt jógúrt (350 ml)
- 1 – 2 msk. Ferskur graslaukur,
smátt saxaður - 2 hvítlauksgeirar, pressaðir eða
fínsaxaðir - Salt og nýmalaður pipar
Blandið öllu saman í skál og bragðbætið með
salti og pipar. Einnig er mjög gott að bæta hunangi eða agave sírópi í þessa
sósu. En það er auðvitað smekksatriði. Gott er að leyfa sósunni að standa í
ísskáp í 15 – 20 mínútur áður en hún er borin fram.

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey K. Hermannsdóttir