Frönsk lauksúpa
Galdurinn við góða lauksúpu er að leyfa lauknum að krauma í smjörinu í dágóðan tíma. Hér er uppskrift að bragðmikilli lauksúpu sem Eva Laufey eldaði í þætti sínum, Matargleði.
400 g laukur
70 g smjör
1 msk hveiti
1 l kjúklingasoð
3 dl hvítvín
4 tímían greinar
3 lárviðarlauf
steinselja, magn eftir smekk
salt og nýmalaður pipar
baguette
rifinn ostur
Aðferð
- Afhýðið lauk og skerið í þunnar
sneiðar. - Steikið laukinn upp úr smjörinu, því
lengur sem þið steikið laukinn því betri verður súpan. Hann á þó alls ekki að
brenna heldur verða glær og gullinbrúnn. - Stráið hveitinu yfir laukinn og
hrærið í. - Hellið soðinu og hvítvíninu saman
við og látið sjóða saman. - Bætið kryddjurtum út í og leyfið henni að malla í 30 mínútur – 50 mínútur.
- Hellið súpunni í skálar sem þola að
fara inn í ofn, setjið eina brauðsneið ofan í hverja skál og stráið osti yfir.
Bakið í ofni í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er bakaður.
Berið súpuna strax fram og njótið
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir