Babyshower og vanillukaka með banana- og karamellufyllingu.

Babyshower er veisla sem haldin er til heiðurs tilvonandi mæðrum. Líkt og nafnið gefur til kynna þá er hugmyndin með slíkri veislu að móðirin tilvonandi sé böðuð í gjöfum. Amerísk hefð að sjálfsögðu en mikil ósköp er gaman að halda svona boð, þetta er auðvitað bara afsökun fyrir kökuáti með vinkonum. Það hefur verið hefð í okkar vinahópi að halda slíkar veislur og ég verð að viðurkenna  að mér finnst fátt skemmtilegra en að plana slík boð. Í gær var svo komið að því að halda boð fyrir Fríðu vinkonu mína sem á von á lítilli dömu í næsta mánuði. Krúttlegheitin brutust út og það var nostrað við hvern bita, það ranghvolfa sjálfsagt margir augunum fyrir umstanginu en okkur þykir þetta svo skemmtilegt og allt sem gerir lífið skemmtilegra er af hinu góða. 
Eins og ég var búin að segja þá er sterk hefð fyrir veislum af þessu tagi í Bandaríkjunum og við hér á Íslandi mættum taka Kanann til fyrirmyndar. Einlæg, falleg og öðruvísi veisla sem gleður. 
Hér koma myndir af veislunni og uppskrift að vanilluköku með banana- og karamellufyllingu. 

Litlar berjaostakökur með hvítu súkkulaði, ég mun birta þessa uppskrift mjög fljótlega. 

Þessir súkkulaðibitar voru ómótstæðilegir, ég þarf að fá uppskriftina hjá Öglu vinkonu og birta hana hér. Brownies með jarðarberjafyllingu og súkkulaðimús. 

Mímósubarinn klár og barnakampavínið fyrir tilvonandi mömmurnar í kælingu

Nýtt uppáhald, litlar pönnukökur með bláberjasírópi og stökku beikoni 

Elísa Guðrún, Heiður, Silja Sif og Gyða
Fríða, Svava Mjöll og Bryndís 
Íris Elín dásamlega litla vinkona mín 
 Agla, Eva og Þórdís Kolbrún 

 Emilía og Sigríður Margrét 

Marengskossar með sítrónufyllingu og ferskum berjum. 

 Vanillukaka með banana-og karamellufyllingu

5 eggjahvítur (notið rauðurnar t.d. í lemon curd)
1 Brúnegg
240 ml mjólk
2 ½ vanilla extract (góð vanilla)
350 Kornax hveiti
400 g sykur
3 tsk lyftiduft
salt á hnífsoddi
170 g smjör, við stofuhita
Aðferð:
  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Hrærið eggjum, mjólk og vanillu
    saman í skál, leggið til hliðar.
  • Sigtið saman hveiti og
    lyftiduft. (Með því að sigta mjölið saman verður það eins fínt og mögulegt er
    og kakan á auðveldara með að lyfta sér)
  • Blandið öllum þurrefnum saman og
    bætið smjörinu við í nokkrum pörtum, það tekur um það bil fjórar mínútur.
  • Bætið síðan eggjablöndunni saman
    við í þremur skömmtum, það er ágætis regla að stoppa af og til og skafa meðfram
    hliðum á skálinni svo allt blandist örugglega vel saman.
  • Smyrjið tvö hringlaga form og
    hellið deiginu í formin. Bakið við 25 – 30 mínútur við 180°C.
  • Kælið mjög vel áður en þið
    smyrjið kreminu á kökuna.

Vanillusmjörkrem og ljúffeng karamellufylling
250 g smjör
500 g flórsykur
4 msk rjómi (eða mjólk)
2 tsk vanilla extract
smá vanillusykur
matarlitur
Aðferð:
  1.  Hrærið
    saman smjör og flórsykri í 3 mínútur, bætið rjómanum og vanillu saman við í
    tveimur skömmtum.
  2. Kremið
    verður léttara og betra ef það fær að blandast vel saman, ég hræri það í um það
    bil fimm mínútur. Að þessu sinni notaði ég bleikan matarlit og bætti honum
    saman við í lokin. Wilton gel matarlitir eru í mínu eftirlæti.
  3. Ég
    skipti kreminu í tvennt, tók smá hluta sem ég ætlaði að nota sem fyllingu og
    sleppti að nota matarlit í þann hluta.

Karamellu- og bananafylling
6 stórar msk smjörkrem, ólitað
2 bananar
2 msk góð karamellusósa t.d. Dulce de leche
Aðferð:
  1. Blandið
    öllu saman í hrærivél í smá stund og smyrjið á milli kökubotnanna.
  2. Þekjið
    kökuna með smjörkremi og skreytið að vild.
  3. Best
    finnst mér að geyma þessa köku í kæli í svolitla stund áður en ég ber hana
    fram.

Þetta var frábær dagur með skemmtilegum vinkonum og hér má sjá fallegu vinkonu mína hana Fríðu sem verður mamma eftir nokkrar vikur. 
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 
Allt hráefni sem notað er í þessa uppskrift fæst í verslunum Hagkaups. 

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *