Á föstudögum elskum við að fá okkur heimabakaða pizzu og borða hana yfir góðu sjónvarpsefni, já allar reglur um að borða ekki í sófanum yfir sjónvarpinu mega gleymast í eitt kvöld eða svo.. okkur finnst þetta mjög huggulegt 🙂
Pizza með hráskinku, klettasalati og kirsuberjatómötum.
Pizzadeig:
- 2 1/2 dl volgt vatn
- 2 tsk þurrger
- 2 tsk hunang
- 2 msk ólífuolía
- 400 – 450 g hveiti
Aðferð:
- Leysið gerið upp í volgu vatni og það er afar mikilvægt að gerið sé volgt.
- Bætið hunangi saman við og hrærið vel í. Þegar byrjar að freyða í skálinni er gerið klárt.
- Blandið olíu og hveitinu saman við í hrærivélaskál. Þið getið auðvitað hnoðað deigið í höndunum en mér finnst langbest að nota hnoðarann á hrærivélinni, það ferli tekur um það bil 4 – 6 mínútur.
- Deigið er tilbúið þegar það er orðið að kúlu og klístrast ekki við hrærivélaskálina. Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefa sig í klukkustund.
Pizza með hráskinku, klettasalati og kirsuberjatómötum.
- 1 pizzadeig
- pizzasósa, magn eftir smekk
- 100 – 150 g rifinn ostur
- 1 bréf hráskinka ca. 6 – 7 sneiðar
- klettasalat
- 10 – 12 kirsuberjatómatar
- Parmesan ostur, magn eftir smekk
Aðferð:
- Hitið ofninn í 220°C.
- Fletjið út pizzadeigið, mér finnst best að skipta uppskriftinni hér að ofan í tvennt en þá eru pizzurnar extra þunnar. Leggið pizzabotninn á pappírsklædda ofnplötu.
- Setjið góða pizzasósu á botninn og sáldrið rifnum osti yfir.
- Raðið hráskinkusneiðum yfir ostinn og setjið pizzuna inn í ofn og bakið við 220°C í 12 – 15 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.
- Skerið klettasalati aðeins niður og dreifið yfir pizzuna þegar hún er komin út úr ofninum ásamt smátt söxuðum tómötum. Rífið niður nóg af parmesan í lokin og berið strax fram!
Ofnbakaðar kartöflur með parmesan
- 15 – 18 venjulegar kartöflur, skornar í bita
- 1 msk ólífuolía
- 2 msk smjör
- Parmesan ostur, magnið er ca 3 – 4 msk
- Salt og pipar
- ½ tsk hvítlaukssalt
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C.
Skerið kartöflur í litla bita, blandið öllum hráefnum saman i skál og þekjið kartöflurnar vel.
Setjið kartöflurnar í eldfast mót og rífið niður enn meiri parmesan yfir þær áður en þær fara inn í ofn við 200°C í 30 – 35 mínútur. Gott ráð að snúa þeim við nokkrum sinnum á meðan þær eru í ofninum.
Litlan mín er orðin svo stór, verður fljótlega þriggja ára!
Njótið vel
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups