Ég er mesti nautnaseggur sem ég veit um. Ég leyfi mér ansi oft að lúra lengur á mánudögum, reyni að lengja helgina pínulítið. Í morgun fór ég á fætur um tíuleytið, lagaði mér hafragraut og gott kaffi. Kveikti á nokkrum kertum, setti Garðar minn Cortes á fóninn og  kom mér vel fyrir í sólstofunni með matreiðslubækur. Ég elska að fletta í gegnum matreiðslubækur og blöð. Á morgun þarf ég að baka fína köku og ég er að vandræðast með valið.
Í kvöld ætla ég að hitta bíóklúbbinn minn.. Ég hlakka til. Þau eru svo afskaplega vel heppnuð eintök.
Mánudagur til mæðu… um að gera að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera á mánudögum, þá eru þeir ekki eins súrir.

xxx

Endilega deildu með vinum :)

3 comments

Leave a Reply to Helena - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *