Egg Benedict – vinsælasti brönsréttur í heimi

Þáttur kvöldsins var tileinkaður djúsí brönsréttur og ég varð auðvitað að gera einn af vinsælustu brönsréttum í heimi, egg Benedict. Fyrir mér er hann algjörlega fullkominn, sameinar allt sem mér þykir gott. Brauð, góð skinka, egg og ljúffeng sósa. Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þennan rétt um helgina og ég þori að lofa að þið eigið eftir að njóta vel.
Egg
Benedict
  • 4 egg
  • 2 L vatn
  • 1 tsk. edik (má sleppa)
  • Salt
  • 6 sneiðar af góðri hráskinku
  • Tvær þykkar sneiðar af grófu brauði
    (ég notaði gróft súrdeigsbrauð)
  • Spínat steikt upp úr smjöri, magn
    eftir smekk
  • 3 – 4 msk. Hollandaise sósa (sjá
    uppskrift fyrir neðan)
  • Salt og nýmalaður pipar
  • Smátt söxuð steinselja
  • Basilíka, eftir smekk

 

Aðferð: Það
er best að byrja á sósunni og þið finnið uppskriftina hér fyrir neðan. Næsta
skref er að skera súrdeigsbrauðið í þykkar sneiðar, setjið brauðsneiðarnar á
pappírsklædda ofnskúffu og sáldrið smávegis af olíu yfir og hitið í ofni í 5 –
7 mínútur við 180°C.
Hleypt egg eru linsoðin án skurnar.
Það er mikilvægt að eggin séu fersk. Setjið vatn í pott, bætið edikinu út í
vatnið og látið suðuna koma upp, lækkið þá undir pottinum en látið hann samt
halda vægri suðu.
Brjótið egg í bolla og hellið egginu
mjög varlega út í vatnið. Sjóðið eggin í þrjár mínútur, þá ætti eggjahvítan að
vera umvafin eggjarauðunni og þegar skorið er í eggið ætti rauðan að leka
fallega út.  Takið eggið varlega upp úr pottinum, mér finnst best að nota
fiskispaða og setjið á eldhúspappír og þerrið.
Snöggsteikið spínat upp úr smjöri og
steikið hráskinkuna í smá stund á pönnu eða þar til hún er orðin stökk og
fín.
Setjið brauðsneiðarnar á diska á
raðið í eftirfarandi röð, brauð, hráskinka, spínat, egg, tvær matskeiðar af
sósu, salt, pipar og smátt söxuð steinselja.
Þetta
er vægast sagt ljúfengur réttur sem allir ættu að prófa.

Hollandaise sósa

  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk kalt vatn
  • 1 tsk sítrónusafi
  • 200 g brætt smjör
  • salt og nýmalaður pipar

 

Aðferð:
Setjið eggjarauður, vatn og
sítrónusafa í ílat sem töfrasprotinn kemst ofan í. Það verður að vera svipað og
sést á þessu myndbandi sem ég fylgdi. Bræðið smjörið og passið að það sé enn
heitt þegar þið hellið því saman við eggjarauðurnar. Þeytið eggjarauður, vatn
og sítrónusafa með töfrasprotanum í eina til tvær mínútur eða þar til það er
komin ljós og létt froða sem hefur margfaldast, hellið smjörinu í mjórri bunu
saman við sósuna þar til hún er tilbúin. Ef sósan verður of þykk þá má
þeyta svolitlu volgu vatni saman við. Að lokum er sósan smökkuð til með salti,
pipar og svolitlum sítrónusafa.

 

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 klukkan 19:25.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

Leave a Reply to Þóranna Hrönn Þórsdóttir - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *