Mánudagur: Súperskálin með bragðmiklum þorski Þriðjudagur: Geggjað kjúklingasalat með ostasósu og stökkum brauðteningum (Sesar salatið góða) Miðvikudagur: Grænmetislasagna með ljúffengu pestó. Þið eigið eftir að elska þennan rétt! Fimmtudagur: Nauðsynlegt að fá aftur fisk og þessi réttur er ótrúlega góður, pestó og fiskur passa einstaklega vel saman. Föstudagur: Þetta eru yfirleitt pizzakvöld á þessu heimili en það er alltof langt síðan ég hef eldað pítu og þessi uppskrift er tryllt og þá meina ég tryllt. Grísk píta með nautakjöti og tzaziki sósu. Helgarmaturinn: Lambakórónur með ljúffengri kartöflumús og heimsins bestu rauðvínssósu. Baksturinn: Ójá, kaka drauma minna. Snickers ostakaka sem er bæði fáránlega einföld og mjööööög góð. Mæli svo sannarlega með henni í vikunni eða um helgina, þið megið ráða því. Ég vona að…