Buffalo blómkáls taco með gráðostasósu
Fyrir 2-3
- 1 stórt blómkál
- 2 tsk salt
- 1 ½ tsk pipar
- 2 tsk paprika
- 1 tsk hvítlaukssalt
- Orly deig
- Salt
- Buffalo sósa
- Ferskt salat
- Tortillavefjur
- Gráðostasósa
- Spírur
Aðferð:
- Skerið blómkálið í litla bita og setjið í skál ásamt þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan og blandið vel saman.
- Veltið blómkálsbitunum upp úr orly deiginu og uppskriftin er hér að neðan. Steikið í olíu sem þolir djúpsteikingu í örfáar mínútur á öllum hliðum þar til blómkálsbitarnir eru gullinbrúnir.
- Þerrið blómkálsbitana á eldhúspappír og saltið aðeins í viðbót.
- Hellið buffalo sósu yfir blómkálsbitana og veltið þeim upp úr sósunni, magnið fer eftir smekk.
- Berið fram í tortillakökum með fersku salati og ljúffengri gráðostasósu.
Þið getið séð aðferðina í Instastory hjá mér á Instagram.
Orly deig:
- 250 ml hveiti
- 250 ml sódavatn
- 1 tsk lyftiduft
- 1 1/2 tsk salt
- 1 tsk pipar
Aðferð:
- Blandið hveitinu, sódavatninu, lyftidufti, salti og pipar saman í skál og hrærið þar til deigið er silkimjúkt.
Gráðostasósa
- 200 g sýrður rjómi
- Safi úr hálfri sítrónu
- 100 g gráðostur
- Salt og pipar
- 1 tsk hunang
Aðferð:
- Setjið allt í skál og maukið með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél. Maukið þar til sósan verður silkimjúk, kryddið til með salti og pipar.
Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir