ÆÐISLEGT TAGLIATELLE Á KORTERI

Eins og þið flest vitið þá elska ég pasta og þessi afar einfaldi réttur sem tekur korter að búa til er í algjöru uppáhaldi. Ég notaði æðislegt pasta frá Kaju Organic, en þetta er lífræn framleiðsla og auðvitað framleidd hér á landi. Það skemmir ekki fyrir að fyrirtækið er staðsett á Akranesi og þess vegna fannst mér enn skemmtilegra að prófa þetta pasta og það er æðislega gott, mæli hiklaust með að þið prófið og styðjið í leiðinni íslenska framleiðslu. Þetta er ekki auglýsing, annars myndi ég nú taka það fram 🙂 Ég er bara svo ánægð með fyrirtækið Kaja er að stækka og bæta við sig allskyns vörum sem eru afar spennandi. TAGLIATELLE
  • 200 g Tagliatelle
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1 krukka pastasósa með basilíku frá merkinu Ítalía ca. 300 g
  • 1/2 kjúklingateningur
  • 2 lúkur spínat
  • 14 kirsuberjatómatar
  • Basilíka
  • Nýrifinn parmesan

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 180°C.
  2. Skerið kirsuberjatómata í tvennt, sáldrið góðri ólífuolíu yfir og kryddið til með salti og pipar. Bakið við 180°C í 10-15 mínútur eða þar til tómatarnir eru mjúkir í gegn.
  3. Setjið pastasósuna í pott, kryddið með salti, pipar og hálfum kjúklingatening. Leyfið sósunni að malla svolítið við vægan hita.
  4. Sjóðið pasta í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  5. Sigtið vatnið frá þegar pastað er tilbúið og setjið ofan í pastasósuna, saxið spínatið svolítið og bætið út í pottinn. Blandið öllu vel saman og berið strax fram með bökum tómötum, basilíku og nýrifnum parmesan.

Njótið vel.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *