Ítalskur vanillubúðingur með ástarlaldinsósu
500 ml rjómi
100 g hvítt súkkulaði
2 msk vanillusykur
1 tsk vanilluduft eða vanillukorn úr vanillustöng
2 plötur matarlím
Aðferð
Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í 4 – 6 mínútur. Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman og bræðið í rólegheitum. Hrærið í á meðan og þegar súkkulaðið er bráðnað bætið þið vanillusykri og vanilludufti saman við, í lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna. Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár klukkustundir, best yfir nótt.
Ástaraldinsósa
3 ástaraldin
3 tsk flórsykur
Aðferð: Skafið innan úr ástaraldin ávextinum og blandið saman við smá flórsykur, setjið yfir vanillubúðinginn áður en þið berið hann fram og njótið strax.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í Hagkaup.