Skinkuhorn með mexíkóskum blæ

Með hækkandi sól finn ég sumarþrána læðast yfir mig. Eruð þið ekki sammála? Það er svo mikill munur að vakna á morgnana í góðu veðri og fara út í daginn með bros á vör. Og afþví sumarþráin er farin að segja til sín þá bakaði ég þessi ljúffengu skinkuhorn í gær en þau minna mig á sumarið. Ég bakaði síðast skinkuhorn rétt áður en ég átti Ingibjörgu Rósu (sem er 21 mánaða í dag). Það var þess vegna tími til kominn fyrir skinkuhornabakstur!
 Ég borðaði ófá horn þegar þau komu út úr ofninum í gær, þau eru auðvitað langbest nýbökuð en svo finnst mér frábært að frysta helminginn af uppskriftinni og grípa í eitt og eitt úr frystinum. Þá er sniðugt að hita þau aðeins upp í ofninum áður en þið berið þau fram. Uppskriftin gefur ca.40 horn en það fer auðvitað eftir stærðinni. Mæli með þessum hornum og sniðugt að bjóða upp á þau í stærri veislum til dæmis.

Skinkuhorn með mexíkóskum blæ

ca.
40 meðalstórn skinkuhorn
  • 900 g. Kornax hveiti
  • 60 g. Sykur
  • ½ tsk. Salt
  • 100 g. Smjör
  • ½ l mjólk
  • 1 pakki þurrger

 

Ofan á:
  • 1 egg
  • Smá mjólk
  • t.d. rifinn ostur eða korn

 

Aðferð:
  1. Hitið mjólkina í potti við vægan
    hita (mjólkin á að vera volg).
  2. Bætið þurrgerinu út í mjólkina og látið standa í
    4 – 5 mínútur.
  3. Bræðið smjörið við vægan hita.
  4. Blandið öllu saman og hnoðið
    deigið vel saman eða þar til deigið er slétt og samfellt.
  5.  Leyfið deiginu að
    lyfta sér í 40 – 50 mínútur. Þá hnoðið þið deigið einu sinni enn og leyfið því
    að lyfta sér í 30 mínútur til viðbótar.
  6. Á meðan deigið er að lyfta sér þá er
    gott að undirbúa fyllinguna. Þið getið auðvitað fyllt deigið með allskyns
    góðgæti en í dag erum við að búa til skinkuhorn og þá er skinka auðvitað
    aðalatriðið.

 

Hér er innihaldið í þessa einföldu
og stórgóðu fyllingu.
  • 1 pakki skinka ca. 250 g
  • 1 askja Tex Mex smurostur
  • 1 askja Paprikuostur
  • ½ rauð paprika
  • Rifinn ostur, magn eftir smekk

 

Aðferð:
  1. Skerið skinkuna í litla bita og
    blandið henni saman við smurostinn.
  2. Þegar deigið er tilbúið þá er því
    skipt niður í fimm einingar. (um 300 – 330 g hver eining)
  3. Fletjið út hverja
    einingu í hring og skerið hverja einingu í átta þríhyrninga (mér finnst gott að
    nota pízzahníf).
  4.  Setjið fyllingu í hvern þríhyrning og dreifið smá osti yfir.
  5.  Rúllið deiginu frá breiðari endanum þegar þið lokið hornunum.
  6.  Pískið eitt egg
    og smá mjólk saman og penslið yfir hornin.
  7.  Gott er að sáldra rifnum osti eða
    kornum yfir hornin áður en þau fara inn í ofn.
  8. Bakið hornin við 200°C í 10 – 12
    mínútur. (Fylgist vel með hornunum því ofnar eru auðvitað misjafnir)

 

Njótið vel.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *