Klístruð og ómótstæðileg rif

Klístruð og ómótstæðileg rif

Svínarif
  • 1 tsk Bezt á allt
    kryddblanda
  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk cumin krydd
  • 1 tsk kanill
  • 1 dl Hoisin sósa
  • 1 dl Soya sósa
  • 1 msk hunang
  • Salt og pipar
  • ½ rautt chili
  • 1 stilkur vorlaukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 msk fersk nýrifið
    engifer
  • 1 dl púðursykur
Aðferð:
  1. Saxið chili
    og vorlauk, blandið öllum hráefnum saman í skál og leggið svínarif í form.
  2. Hellið sósunni yfir og geymið í kæli. Best er að leyfa kjötinu að liggja í
    sósunni í nokkrar klukkustundir.
  3. Pakkið kjötinu inn í álpappír og bakið við
    110°C í 2,5-3 klukkustundir. Eftir þann tíma stillið þið ofninn á grillhita og
    opnið álpappírinn, steikið kjötið á þeim hita í 10-15 mínútur.
  4. Dreifið ristuðum
    sesamfræin yfir kjötið áður en þið berið það fram.

Ferskt hrásalat

  • ½ höfuð rauðkál
  • ½ höfuð hvítkál
  • ½ rautt chili aldin
  • 2 stilkar vorlaukur
  • Safi úr hálfri
    límónu
  • Safi úr hálfri
    appelsínu
  • Handfylli kóríander
  • Salt
 Aðferð:
  1. Skerið grænmetið
    smátt og blandið saman í skál.
  2. Kreistið safann úr límónu og appelsínu yfir
    salatið og kryddið til með salti og pipar. Gott er að leyfa salatinu að standa
    í hálftíma í kæli áður en þið berið það fram.

 

Njótið vel.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *