Pavlova með ástaraldin- og mangósósu

Pavlova með ástaraldin- og mangósósu

Marensbotn
  • 6 Stk eggjahvítur
  • 300 g sykur
  • 1 ½ tsk mataredik
  • 1 tsk vanilla extract eða dropar
  • Salt á hnífsoddi
Aðferð:
  1. Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í
    þremur skömmtum og þeytið vel á milli.
  2. Bætið ediki og vanilludropum saman
    við þegar marensinn er orðinn stífur.
  3. Teiknið hring á
    bökunarpappír, u.þ.b. 24 cm í þvermál, og smyrjið marens á pappírinn. Bakið
    marensinn við 100° C í 90 mín. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið
    marensinn kólna íalla vega 3 klst í ofninum ef þið hafið tíma til.
Krem:
  • 1 dós kókosmjólk (frosin)
Aðferð:

  1. Frystið kókosmjólkina í
    40-60 mínútur.
  2. Setjið hana síðan í skál og þeytið þar til áferðin verður
    rjómakennd.
  3. Dreifið kreminu vel yfir kökuna og setjið vel af ástaraldin sósunni
    yfir og skreytið með ferskum berjum.
Ástaraldin- og mangó sósa
  • 4 ástaraldin
  • Safi úr hálfri appelsínu
  • 2-3 tsk flórsykur
  • 1 mangó
Aðferð:
  1. Skafið kjötið úr ástaraldinávextinum
    og setjið í pott ásamt appelsínusafa og flórsykri. Leyfið sósunni að ná suðu og
    hrærið vel í.
  2. Skerið mangóið í litla teninga og bætið út í sósuna. Kælið sósuna
    vel áður en þið hellið henni yfir kökuna.
Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Njótið vel.
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

 

Endilega deildu með vinum :)

1 comment

Leave a Reply to Gréta María Birgisdóttir - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *