Æðislegar kjúklinganúðlur

Kjúklinganúðlur með wasabi sósu

  • 800 g kjúklingakjöt (ég notað
    úrbeinuð læri)
  • 2 dl sojasósa
  • 2 dl sweet chili sósa
  • 200 g núðlur
  • 1 rautt chili
  • 1 agúrka
  • 1 rauð paprika
  • 2 stilkar vorlaukur
  • kóríander
  • límóna
  • salt og pipar
  • Wasabi hnetur
Aðferð:
  1. Blandið sojasósu og sweet
    chili sósunni saman.
  2. Leggið kjúklingakjötið í
    eldfast mót og hellið sósunum yfir. Gott er að leyfa kjúklingnum að marinerast
    í 1 – 2 klst. Þess þarf ekki en kjúklingurinn verður bragðbetri. Kryddið til
    með salti og pipar.
  3. Eldið kjúklinginn við 180°C í
    25 – 30 mínútur.
  4. Skerið agúrku, papriku og
    vorlauk mjög smátt.
  5. Sjóðið núðlurnar samkvæmt
    leiðbeiningum á pakkanum.
  6. Skerið kjúklinginn í munnbita
    þegar hann er klár og blandið honum saman við núðlurnar og grænmetið. Það ætti
    að vera sósa í fatinu sem er frábær út á núðlurnar.
  7. Berið núðlurnar fram með
    kóríander, límónu, bragðmikilli wasabi sósu og hnetum.

Bragðmikil
sósa með wasabi og límónu 

  • 1 dós sýrður rjómi 10% t.d.
    frá MS
  • 3 – 4 msk majónes
  • Wasabi paste, magn eftir smekk
  • Safinn úr hálfri límónu
  • 1 tsk hunang
  • Salt og pipar
Aðferð:
  1. Blandið öllu saman í skál,
    best er að byrja að setja minna en meira af wasabi þar sem það er afar sterkt.
  2. Gott er að geyma sósuna í kæli í 30 mínútur áður en hún er borin fram. Það
    gildir með allar kaldar sósur.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Njótið vel.
Öll hráefni sem notuð eru í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *