Fylltur lambahryggur með sólkysstum tómötum, furuhnetum, ólífumauki, steinselju og sítrónuberki er afar ljúffeng steik sem passar einstaklega vel á veisluborðið um páskana. Með hryggnum er gott að hafa ofnbakaðar kartöflur í andafitu og auðvitað góða soðsósu, fullkomið fyrir þá sem vilja nostra aðeins við matargerðina og njóta í botn. Í þætti kvöldsins sýndi ég áhorfendum þessa einföldu og bragðmiklu uppskrift sem ég hvet ykkur til að prófa um páskana.
Fylltur lambahryggur með tómat-og furuhnetupestói
Fyrir 4-6
1 lambahryggur ca. 2,5 kg, úrbeinaður
Fylling:
- 1 krukka sólkysstir tómatar
- 3 msk ólífutapende
- 70 g ristaðar furuhnetur
- ½ laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk fersk steinselja
- Salt og nýmalaður pipar
- 1 msk jómfrúarolía
- Börkur af hálfri sítrónu
- 2 tsk smátt saxað rósmarín
- ½ L vatn
Grænmeti:
- 2 laukar
- 4 hvítlaukar, heilir
- 4-6 gulrætur
Aðferð:
- Látið kjötborðið úrbeina lambahrygginn.
- Setjið öll hráefnin sem eiga að fara i fyllinguna í matvinnsluvél og maukið vel.
- Setjið fyllingunni á milli hryggjarvöðvanna og leggið lundirnar þar ofan á.
- Mótið rúllu og vefjið seglgarni utan um rúlluna og kryddið hryggginn með salti, pipar, sítrónuberki. Saxið einnig niður ferskt rósmarín og sáldrið yfir.
- Skerið grænmetið í grófa bita og leggið í eldfast mót, setjið lambahrygginn yfir og hellið hálfum líter af soðnu vatni í fatið og inn í ofn við 180°c í 45-50 mínútur. Þegar 15 mínútur eru eftir af eldunartímanum er ágætt að hækka hitann í 200-210°C.
- Leyfið kjötinu að hvíla í 10 mínútur áður en þið skerið það og berið fram, hellið soðinu frá og geymið fyrir sósugerð.
Ofnbakaðar kartöflur í andafitu
- 10-15 kartöflur að eigin vali
- 2-3 msk andafita
- 4 – 5 hvítlauksrif
- 3-4 rósmaríngreinar
Aðferð:
- Afhýðið kartöflurnar og sjóðið í vel söltu vatni í 10 mínútur. Eftir þann tíma takið þær upp úr pottinum og leggið í eldfast mót.
- Skerið niður hvítlauksrif og saxið ferskt rósmarín. Setjið 2 msk af andafitu í formið og veltið kartöflunum upp úr fitunni.
- Kryddið til með salti og pipar. Bakið í ofni við 180°C 30 – 35 mínútur eða þar til kartöflurnar eru gullinbrúnar, það er gott ráð að snúa þeim við endrum og eins.
Soðsósa
- 300-400 ml soð
- ½ nautakraftsteningur
- Salt og pipar
- 500 ml rjómi
- 2 tsk hveiti
- 1 msk olía
Aðferð:
- Sigtið soðið í pott og blandið nautakrafstening og rjóma saman við.
- Kryddið til með salti og pipar. Leyfið sósunni að ná suðu og hrærið vel í á meðan.
- Blandið saman í skál hveiti og olíu og þykkið sósuna með hveitblöndunni.
- Berið strax fram með kjötinu.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2 klukkan 19:25.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.