Æðislegt andasalat með ristuðum valhnetum, perum og geitaosti.

Í þætti kvöldsins lagði ég áherslu á rétti sem tilvalið er að elda um páskana. Þetta andasalat með steiktum perum, stökkum valhnetum og geitaosti er yfirgengilega gott. Andabringur eru auðvitað algjört sælgæti og eru frábærar í salöt, páskamaturinn þarf alls ekki að vera þungur í maga og tilvalið fyrir þá sem kjósa léttari rétti að bera þennan rétt fram um páskana.
Andasalat með stökkum valhnetum og geitaosti
  • 2 andabringur
  • 1 poki klettasalat
  • 1 granatepli
  • 2 perur
  • 1 tsk ólífuolía
  • 1 tsk smjör
  • Handfyll ristaðar valhnetur
  • Geitaostur, magn eftir smekk
  • Salatdressing
  • 1 tsk rauðvínsedik
  • 1 dl jómfrúarolía
  • 2 skallottulaukar
  • 1 tsk dijon sinnep
  • Salt og pipar
Aðferð:
  1. Skerið aðeins í andabringurnar og steikið á pönnu. Kryddið bringuna til með salti og
    pipar og steikið bringurnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Setjið andabringurnar
    í eldfast mót og inn í ofn við 180°C í 8 – 10 mínútur. Eins og með allt kjöt er mikilvægt að leyfa því að hvíla í fáeinar mínútur áður en það er skorið, en það kemur í veg fyrir að safinn leki út og kjötið verði þurrt.
  2. Skerið perur í sneiðar og steikið upp úr olíu og smjöri í 1-2 mínútur á hvorri hlið.
  3. Þurristið valhnetur á pönnu.
  4. Útbúið franska salatdressingu, saxið niður skallottulauk mjög smátt og setjið í skál. Blandið jómfrúarolíu, sinnepi og rauðvínsediki saman við og hrærið vel í dressingunni.
  5. Veltið kálinu upp úr dressingunni og leggið salatið á fat, raðið perum yfir, skerið
    andabringuna í sneiðar og leggið yfir, myljið geitaosti, sáldrið valhnetum og dreifið granateplum yfir salat í lokin.
  6. Berið strax fram og njótið vel.

 

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:25 á Stöð 2.
xxx
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *