Ljúffengur chiagrautur

Þetta er uppáhaldið mitt í morgunsárið, ég elska þegar ég hef nægan tíma á morgnana til þess að útbúa mér morgunmat. Hundfúlt að fara með tóman maga út í daginn. Þessi grautur eru sérstaklega einfaldur og fljótlegur, svo er hann líka mjög góður. Hér kemur uppskriftin, ég vona að þið prófið og njótið vel. 
Chia grautur 

1 dl haframjöl
1 1/2 dl vatn
1 1/2 dl mjólk
3 msk chia fræ
smá salt
Öllu blandað saman í pott og hitað við mjög vægan hita þar til grauturinn hefur þykknað, hrærið vel í á meðan. Berið grautinn fram með smá agavesírópi og ferskum berjum. Ég var svo heppin að fá þrjár öskjur af dásamlegum Íslenskum jarðaberjum í gær og ég naut þess að borða þau í morgunsárið. Vá, hvað íslensku berin eru miklu betri en þau útlensku. 
Ég vona að þið eigið ljúfan föstudag kæru vinir. Við heyrumst fljótlega!
xxx
Eva Laufey Kjaran

Endilega deildu með vinum :)

3 comments

  • Hæ hæ, virkilega gaman að lesa síðuna þína og prufa uppskriftir sem að þú setur hérna inn! Ég er einmitt lengi búin að ættla að gera mér svona Chia graut, á fræin og allt, enn vissi aldrei almennilega hvernig ég ætti að gera hann svo að þetta er snilld! En þarf ég ekkert að leggja Chia fræin í bleyti daginn áður? Finnst ég hafa heyrt það einhverstaðar…

    • Ég legg þau stundum í bleyti, en þá bara í svona 10 mínútur. Það er alveg nóg fyrir mitt leyti, það er ekki nauðsynlegt að bleyta þau. Ég prófaði mig bara áfram 🙂 Ég mæli með að þú prófir grautinn – ansi góður.

      Bestu kveðjur,

      Eva Laufey

  • Ég prófaði þennan graut og hann var ekkert smá góður! Þú er snillingur, elska uppskriftinar þínar og þessa síðu 🙂

    Kær kveðja,

    Ragnheiður

Leave a Reply to Eyrún - Cancel Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *