Kjúklingur Saltimbocca

Kjúklingur Saltimbocca

Fjórar kjúklingabringur

  • 8 hráskinkusneiðar
  • 10 – 12 fersk salvíublöð
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 1 – 2 msk. Ólífuolía

Aðferð:

Skerið kjúklingabringur í tvennt og kryddið með salti og pipar.

Leggið eitt salvíublað ofan á kjúklingabringuna og vefjið hráskinkunni utan um hvern bita. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið

bringurnar í smá stund á hvorri hlið eða þar til þær eru brúnaðar á öllum hliðum.

Leggið bringurnar því næst í eldfast mót og inn í ofn við 180°C i 20 mínútur. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum útbúið þið sósuna og kartöflumús.

Kartöflumús með parmesan osti

  •      500 g soðnar kartöflur
  •      30 g smjör
  •      1 dl mjólk
  •      Salt og nýmalaður pipar
  •      1 dl rifinn parmesan ostur

Aðferð: Afhýðið kartöflurnar og bræðið smjörið. Setjið

kartöflurnar út í smjörið og takið pottinn af hitanum, stappið kartöflurnar vel

saman við smjörið og hellið volgri mjólk út í smáum skömmtum. Bætið ostinum við

og stappið öllu vel saman þar til réttri áferð er náð, það er smekksatriði hvað

þið notið mikla mjólk en þið finnið það um leið ef þið þurfið að bæta við mjólk.

Bragðbætið með salti og pipar.

Hvítvínssósa

  • 2 msk. Smjör
  • 6 – 7  fersk salvíublöð, smátt skorin
  • 700 ml hvítvín
  • 1 stk. Kjúklingakraftur
  • Nýmalaður pipar

Aðferð: Bræðið smjörið á pönnu og steikið salvíublöðin.

Hellið hvítvíninu út á og bætið kjúklingakraftinum saman við. Kryddið til með

pipar.  Leyfið sósunni að sjóða í smá stund, lækkið þá hitann og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur eða þar

til kjúklingurinn er tilbúinn.

Sjóðið gjarnan ferskann aspas og berið fram með réttinum.

xxx

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Öll hráefnin í þessa uppskrift fást í verslunum Hagkaups.

Endilega deildu með vinum :)

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *